Enn um Spánarsnigilinn

Á þessum síðum var fyrir nokkru fjallað um nýja nafnið á Kaupþingi, Arion, en einhverjir höfðu áttað sig á að Spánarsnigillinn, skaðræðiskvikindi í náttúru landsins, sé af ætt Arionsnigla.

Í Viðskiptablaðinu er fjallað örlítið um Arionbanka í dag. Þar eru rakin tengsl milli bankans, Haga, 365 miðla o.s.frv. og sýnt fram á hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hagi jafnvel málum þannig að einstaklingur, skyldur forstjóra 365 miðla, eigi sæti í stjórn Ríkisútvarpsins. fleiri tengsl eru rakin sem ættu að vera áhugaefni þeirra sem rannsaka tengslin í íslenska vadakerfinu.

Þá er sýnt fram á hvernig þessi persónutengsl séu nýtt til þess að auglýsa í miðlum, þóknanlegum baugsveldinu, en ekki öðrum.

Frammistaða Arionbanka og ýmislegt, sem nú er á seiði í íslensku viðskiptalífi, veldur því að almenningur kemst nú óðum á þá skoðun að þeir, sem frömdu bankahrunið, fái eignir sínar afhentar á ný þótt þeir hafi í raun misst allt niður um sig. Nefndir eru til sögunnar einstaklingar, sem fjölmiðlar hlífi af einhverjum ástæðum á meðan aðrir séu sóttir til saka. Niðurstaðan er sögð sú að innan 5 ára verði flest komið í sama horf. Þótt fyrirtækjum verði skipt upp í smærri einingar verði þau sameinuð og sama fólkið, sem áður sat við kjötkatlana, sitji þar áfram eða afkomendur þess.

Viðskiptablaðið heldur þvi fram að Arionbanki hafi jafnvel skipt jafnoft um nafn og Steingrímur Sigfússon um skoðun. Ég botna hins vegar ekkert í því hvers vegna blaðið fjallar ekki um skoðunarskipti formanns Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu sem fer nú hamförum vegna þess er hann studdi í desember 2008.

Allir eiga víst rétt á að skipta um skoðun:) Jafnvel Steingrímur og Bjarni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband