Gerpla er ekki Fóstbræðra saga

Gerpla er snilldarsýning á allan hátt. Umgerð leikmyndarinnar er einföld og táknræn, textinn skilar sér með ágætum og leikhópnum tekst prýðilega að koma meginefni sögunnar til skila - svo vel að fólk þarf ekki að hafa lesið Gerplu áður en það sér leikritið.

Einn óánægðan leihúsgest hitti ég þó í gærkvöld og þótti honum hlutur þeirra fóstbræðra fremur háðulegur. Vel að merkja hafði þessi fjölmenntaði maður ekki lesið Gerplu.

Þar skilur á milli feigs og ófeigs. Gerpla er hvorki Fóstbræðra saga ókunns höfundar né Ólafs saga helga. Gerpla er snörp ádeila á ofbeldi og gerir fremur lítið úr hetjudýrkun enda sagði Halldór Laxness frá því sjálfur hver áhrif samtímans hefðu verið.

Gerpla er samt óður til tryggðarinnar. Þó er undir hælinn lagt hvort sú ást sem maður ber í brjósti til alls sem honum er kærast eigi að verða til þess að hann kasti öllu frá sér og leggi líf sitt í sölurnar til þess að hefna þess er hallaðist. Afraksturinn verður alger ósigur.

Djúp og danskra vopna

Dags hríðar spor svíða.

Ætli þessi endir síðustu vísu Þormóðar Kolbrúnarskálds sé ekki niðurstaða þessara hugleiðinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Tek undir hvert orð í þessari færslu.

Ragnhildur Kolka, 14.2.2010 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband