Hugsanleg minnihlutastjórn VG

Mörg mál bar á góma á Sjálfstæðisþinginu í dag enda ýmislegt í deiglunni. Eftir að ályktunin um Evrópusambandsaðildina var samþykkt, VG höfðu vísað svipaðri ályktun til framkvæmdaráðs og Samfylkingin lýst afstöðu sinni og ákvörðun um að halda áfram á sinni braut, telja ýmsir að skárri kost sé vart hægt að finna en þann að VG myndi minnihlutastjórn sem varin verði af Sjálfstæðisflokki og framsóknarflokki. Í samningum um slíka stjórn muni bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn fá ýmsum málum framgengt, VG fái komið ákveðnum áherslumálum gegnum þingið en umfram allt - aðildarumræðurnar verði dregnar til baka og Samfylkingin sitji eftir sleikjandi sár sín - bitsár sem hún hefur sjálf veitt sér með því að glefsa í sjálfa sig, eins og einn heimildarmaðurinn orðaði það svo kurteislega.
mbl.is Óþarfi að sundra flokksmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er fólk eiginlega tilbúð að fórna miklu bara fyrir tryggð sína við flokk á borð við Sjálfstæðisflokkinn. Hugsið ykkur að ef við göngum í ESB þá lækka vextir á öllum lánum til heimilanna og fyrirtækja um 228 miljarða á ári, já 228 miljarða á hverju ári. Þetta eru peningar sem ég og þú eigum og verðum að vinna hörðum höndum fyrir og láta síðan af hendi við fjármagnseigendur. Að ganga í ESB yrði þess vegna mesta kjarabót sem íslenskum almenningi mun nokkurn tíman standa til boða. Hugsið ykkur einnig allar vinnustundirnar sem almenningur þarf að leggja á sig til að borga þessa 228 miljarða á ári. Þetta er fórnarkostnaðurinn sem við borgum fyrir að vera ekki í nánara samstarfi við aðrar þjóðir, og husið ykkur einnig hve við gætum búið börnunum okkar betra líf ef ekki kæmi til þetta rán á hverju ári. Einnig má velta því fyrir sér allan þann frítíma sem fólk hefði ef það þyrfti ekki að vinna myrkran á milli til að borga þessa okurvexti. Áfram ESB!!!!

Svona lán munu bjóðast Íslendingum ef þeir ganga í ESB. Þeir gætu valið á milli

   1. Lán með 4 prósenta föstum vöxtum til 30 ára.

   2. Lán með breytilegum vöxtum til 30 ára. Vextirnir á því láni eru nú 1,9 prósent og geta aldrei farið upp fyrir 5 prósent.

  

Sumir Íslendingar vilja borga sín lán með verðtryggingu og vöxtum 17 falt til baka, þ.e. þeir sem eru á móti því að ganga í ESB. Þessi kjör hér að ofan standa dönskum almenningi - og öllum Evrópubúum ef út í það er farið - til boða. Og þau eru öll óverðtryggð enda slíkt fyrirbæri óþarft í heilbrigðum hagkerfum. Þau sem sagt lækka í hvert skipti sem borgað er af þeim. Ef við tökum lán til 40 ára hér á landi og miðum við 5% vexti og 5% verðbólgu, sem sagt allt í fína lagi, þá þurfum við að borga hátt í 200 miljónir til baka á þessum 40 árum. Ef við tökum lán á evrusvæðinu 20 miljónir til 40 ára, þá þurfum við að borga 24 miljónir til baka. Hvort vilt þú?

Gott fólk, út af hverju takið þið ekki afstöðu til ESB út frá því hvort það komi ykkur persónulega vel eða ekki? Kvótagreifinn tekur afstöðu til ESB út frá því sem er best fyrir hann, óðalsbóndinn tekur afstöðu út frá því sem er best fyrir hann. Hvað með þig, langar þig að borga húsnæðislánið þitt 10 falt til baka, eða rúmlega einu sinni til baka? Hættum þessu bulli að láta einhverja sérhagsmunasambönd teyma okkur út í stuðning við örfáa aðila, tökum bara afstöðu til ESB út frá því sem kemur okkur sjálfum og fjölskyldum okkar best. Hvort viltu borga til baka af 20 miljóna króna íbúðarláni, 200 miljónir eða 24? Ertu flón eða maður sem stendur með sjálfum þér?
Lestu eftirfarandi og spurðu sjálfan þig hvort það sé þess virði að styðja við bakið á kvótagreifum og óðalsbændum? Hversu miklu ertu tilbúinn að fórna svo sérhagsmunaaðilar sofi rólega á meðan þú borgar af láninu þínu?



Samkvæmt útreikinginum á kostnað við fasteignalán til fjörutíu ára í Þýskalandi á fasteignavefnum Immobilienscout:=> Fjárhæðin skiptir ekki máli fyrir útreikningana, hún vex í sama hlutfalli hversu há sem hún er, en við miðuðum við 100.000 evrur og þá 4% vexti sem gefnir eru upp til viðmiðunar. Vaxtarkostnaður við slíkt lán væri 19.475 evrur. Það er, heildarfjárhæðin sem lántaki greiðir til baka á 40 árum er 119.475 evrur. Vaxtakostnaðurinn er tæp 20% af lánsfjárhæðinni.
Kostnaðurinn við þýskt húsnæðislán til 40 ára er því undir 20% af lánsfjárhæðinni. Kostnaðurinn við íslenskt húsnæðislán til sama tíma, miðað við 6% vexti og 5% verðbólgu, er yfir 800% af lánsfjárhæðinni. Munurinn á 20% (0,2x) og 800% (8x) er fertugfaldur.

Valsól (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 23:59

2 Smámynd: Dingli

Fín hugmynd Arnþór!

Valsól: Til hamingju! Þér hefur tekist að reikna það út að við getum hætt fiskveiðum, lokað álverunum, sagt öllum sem vinna í og við útflutningsiðnað að fara heim og leggja sig, því hægt sé að lifa góðu lífi á því eingöngu að borga Evrópusambandsvexti. 

Dingli, 27.6.2010 kl. 10:07

3 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Dingli, líklega setur þú Íslandsmet í bulli í athugasemd þinni að framan. En ekkert kemur mér á óvart lengur hvað andstæðingar aðildarumsóknar Íslands að ESB setja fram í rökleysum og bulli. Ég hef engan veginn gert það upp við mig hvort ég muni greiða atkvæði með inngöngu Íslands í ESB, það fer allt eftir því hvaða samningar nást ef þeir þá nást á annað borð. En andstæðingar aðildar geta ekki beðið eftir að sjá hvað kemur í ljós við endanlega samninga. Það er augljóst að andstæðingarnir eru svo logandi hræddir við að það náist svo hagstæðir samningar við ESB að hagsmunir okkar liggi augljósir í því að við göngum inn.

Þess vegna fara þeir fram í sínum málflutningi eins og raun ber vitni.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 11:16

4 Smámynd: Dingli

Sigurður: 228 miljarðar sem Valsól telur landsmenn hagnast á vaxtamismun, er 20 miljörðum hærri tala en útflutningstekjur okkar voru árið 2007!

Þess vegna setti ég þetta svona fram. Ef þú telur mig hafa sett bullmet með "skoti" á langlokubull þar sem smáatriðum  eins og vöxtum og verðbótum er rugglað saman í eitt, og draumurinn um að allt sé betra hinumegin stærð í jöfnunni, þá verður bara að hafa það.

Dingli, 27.6.2010 kl. 12:11

5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ein aðalröksemd aðildarsinna er að við munum halda sjálfstæði okkar þó við gengjum í ESB. Hvernig er þá hægt að segja að við getum fengið sömu vexti og Þjóðverjar.

Hagkerfi landsins hlýtur að ráða vöxtum, sama hver gjaldmiðillinn er. Annað gengur einfaldlega ekki upp.

Ef vextir hjá okkur verða þeir sömu og í Þýskalandi, mun annað tveggja ske; engin lán verður hægt að fá, eða við förum á hausinn.

Ég vil benda Valsól á að skoða hversu margar vinnustundir Spánverjar þurfa til að borga af sínum hagstæðu ESB lánum og bera það saman við okkur hérna á klakanum.

Gunnar Heiðarsson, 27.6.2010 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband