Óábyrg strákapör norsku Nóbelsnefndarinnar

Í fyrra veitti norska Nóbelsnefndin núveranda Bandaríkjaforseta friðarverðlaun. Þó stendur maðurinn í a.m.k. tveimur styrjöldum í Mið-Austurlöndum.

Um daginn ákvað nefndin að veita kínverskum andófsmanni friðarverðlaunin fyrir tillögur sem gætu haft skelfilegar afleiðingar, yrði þeim hrundið í framkvæmd.

Sígandi lukka er best og það veit kínverskur almenningur. Þess vegna erþað jafn ábyrgðarlaust af íslenskum stjófnvöldum að senda fulltrúa sína á þessa meintu friðarhátíð og hjá Norðmönnum sem virðast hafa misskilið hlutverk nefndarinnar. Þar skipta orðsendingar kínverskra stjórnvalda engu máli heldur skynsemi og ábyrgð íslenskra stjóvnvalda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Meðal Þessara friðarhöfðingja Nóbels eru líka Kissinger, Arafat, Simon Peres og Ghandi, sem ekki var sérdeilis hrifinn af gyðingum t.d. og í raun snarklikkaður.

Einnig má nefna afstyrmi Kaþólskunnar, Móður Teresu, sem safnaði mlljörðum meðal vafasamra einræðisherra og sukkópata og byggði klaustur og minnismerki um sjálfa sig fyrir allt.  Hjálpaði aldrei neinum, en leyfði deyjandi að liggja á steingólfum og járnfletum á meðan nunnur horfðu á þá fjara út í kvöl án lyfja.  Algert monster í raun, eins og kirkjan hennar öll að sjálfsögðu.

Hver ætti að taka mark á friðarverðlaunum?

Jón Steinar Ragnarsson, 5.11.2010 kl. 19:07

2 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Friðarverðlaunin eru hjóm, svo oft hafa þau verið gjaldfelld í gegnum tíðina. Kissinger er náttúrulega eftirlýstur stríðsglæpamaður og leytun að fyrirlitlegri karakter. http://warcrimestimes.blogspot.com/2010/05/ireland-action-to-arrest-wanted-war.html

Georg P Sveinbjörnsson, 5.11.2010 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband