Bréf til skrifstofu Stjórnlagaþings

Í kvöld sendi ég eftirfarandi bréf til skrifstofu Stjórnlagaþings. Afrit bréfsins fengu umboðsmaður Alþingis, Blindrafélagið og Öryrkjabandalag Íslands.

Heiðraði móttakandi.

Ég undirritaður, Arnþór Helgason, kt. 0504522209, til heimilis að Tjarnarbóli 14, 170 Seltjarnarnesi, tek ekki þátt í kosningum til stjórnlagaþings sem eiga að fara fram 27. nóvember 2010.

Í rúma þrjá áratugi hafa sérstakar ráðstafanir verið gerðar til þess að blint og sjónskert fólk geti kosið til Alþingis og sveitarstjórna í einrúmi og án aðstoðar. Hið sama gildir um forsetakosningar.

Nú vill svo til að ekki hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að þessi hópur geti neytt atkvæðisréttar síns með sama hætti og aðrir borgarar þessa lands. Því uni ég ekki og stendur sú ákvörðun mín að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslunni nema breyting verði þar á.

Markmið stjórnlagaþings er og hlýtur að verða að efla mannréttindi hér á landi. Kosningar til þingsins bera því ekki vitni að hugað hafi verið að þeim þætti.

Virðingarfyllst,

Arnþór Helgason

arnthor.helgason@simnet.is

Símar: 5611703 8973766

Arnþór Helgason er fyrrum varaformaður Blindrafélagsins, formaður Öryrkjabandalags Íslands og framkvæmdastjóri þess.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Auðvitað, alveg lögmæt krafa.

Ragnheiður , 18.11.2010 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband