Gamalt fólk fer ekki út á kvöldin - útvarpsleikrit

Jólaleikrit Ríkisútvarpsins, Gamalt fólk fer ekki út á kvöldin, var flutt í dag, annan dag jóla árið 2010. Leikurinn fjallar um öldruð hjón sem fá til sín tvo sölumenn. Þeir eru svo ágengir að það veldur óþoli þees er á hlýðir. Þótt hegðun sölumennanna sé e.t.v. yfir siðferðismörkum er greinilegt að höfundurinn hefur vandlega velt fyrir sér hveri setningu og leikstjórnin var til hreinnar fyrirmyndar.

Hljóðmynd leikritsins var einföld og í sjálfu sér óaðfinnanleg. Það hefði þó aukið gildi hennar að hafa dauf umhverfishljóð í bakgrunni, t.d. þegar farið var inn í svefnherbergi hjónanna sem vissi að bílastæðinu við blokkina.

Þorsteinn D. Marelsson (1941-2007) hófst handa við að rita útvarpsleikrit á 8. áratug síðustu aldar. Nokkur viðvaningsbragur var á fyrstu leikritum hans, en honum óx ásmegin og fór stöðugt fram. Innan skamms varð hann einn okkar fremstu höfunda útvarpsleikritahöfunda eins og verkið, sem útvarpað var í dag, ber svo ljóst vitni um.

Ekki verður lagt mat á frammistöðu leikaranna, enda óþarft því að hún var gallalaus. Leikstjórinn, sem þekkir útvarpið jafnvel og Þorsteinn Marelsson gerði, hefði þó mátt gera´kossaatriðið ögn ástríðufyllra, því að ástir gamals fólks eru einatt ástríðuþrungnar, þótt um annars konar nautnir og ástríður sé að ræða en hjá ungum elskendum eða nýgiftum hjónum.

Skilyrðislaust er mælt með þessu leikriti sem er á meðal þess besta sem flutt hefur verið í Ríkisútvarpið á þessu ári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll vertu Arnþór og þú líka frú Elín.

Takk fyrir leikdóminn.

Ég hlustaði líka í gegnum tölvuna mína hér á Jótlandi í miklum kulda og frosti hjá dóttur okkar og  hafði mikið gaman að. Leikurinn og leikstjórnin frábær, enda eru Gunnar og Kristbjörg ávalt einstök í sinni röð, og sölumennirnir voru óaðfnnanlegir og "óþolandi" á alla lund.

En berðu kveðju okkar til vinanna á Íslandi, sem við erum sameiginlega kunnugir, viltu vinsamlegast kyssa frú Elínu, bæði af þörf og með kveðju frá okkur, og líka þau Hring, Árna og fjölskyldu , og berðu kveðju okkar til vina okkar á Ísafirði, ef þú heyrir í þeim, þeirrar eðlakvinnu og einstaks vinar frú Steinunnar Maríu og Bigga míns, þúsundþjalasmiðs, útskurðarmeistara, badmintonsmanns, frímúrara, golfsjúklings og vinar.

Jólakveðjur úr danaveldi.

Unna og Mummi

Guðm. R. Ingvason (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband