Forseti féll á prófinu

Það kom fáum að óvörum að forseti Íslands gæfi kost á sér að nýju til embættisins. Þótt ýjað hafi verið að því, m.a. á síðum Morgunblaðsins, að undirskriftarsöfnunin hafi valdið vonbrigðum, ber því þó ekki að neita um 15% kosningabærra manna skrifuðu undir og slíkt er erfitt að standast.

Hitt olli vonbrigðum, að forsetinn lét í það skína, að leystust ýmis mál sem snerta forsetaembættið og fullveldi landsins, hefði hann leyfi til þess að hætta í starfi og gefa öðrum kost á að spreyta sig. Væntanlega hlyti það að gerast eftir að nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar hefðu verið samþykktar.

Nú er svo komið að Alþingi verður að taka af skarið og breyta 5. grein stjórnarskrárinnar, svo að ljóst megi verða hvernig staðið verði að kosningu til embættis forseta Íslands. Þá er miður að núverandi forseti telji sér frjálst að ákveða hvaða mál henti til þess að hlutverki hans sé lokið. Málin flækjast því en og óvissan eykst.


mbl.is Margvísleg óvissa er ástæðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Dapurlegur pistill miðað við hvað er miðað... ;) . Mér finnst að við eigum lokka Ólaf til að halda þessu áfram...er það ekki málið?

Óskar Arnórsson, 4.3.2012 kl. 19:58

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Forsetin okkar er að svara kalli okkar það er meir en ríkisstjórnin okkar og alþingi gera.

Valdimar Samúelsson, 5.3.2012 kl. 13:28

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

ég get ekki séð að það þurfi að breyta nema 8. gr. stjórnarskrárinnar varðandi forsetann. En það er að ég vil sjá einhvern einjn mann sem væri varaforseti. Varaforsetinn á ekki að vera forsætisráðherra, forseti hæstaréttar, eða forseti Alþingis. Þetta er fólk sem ég tel óhæft sérstaklega í dag til að sinna starfinu sem varamenn forseta. Það er reyndar einna helst að ég gæti treyst forseta hæstaréttar en engum öðrum sem nefndur er.

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 5.3.2012 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband