Kosningaumræða á villigötum

Þessi pistill var fyrst birtur 6. júní. Vegna mistaka höfundar þurfti að breyta honum og er hann því birtur örlítið breyttur.

Ég ætlaði þennan pistil til birtingar á Eyjunni. Kerfi miðilsins er óaðgengilegt þeim, sem þurfa að nota skjálesara og er hann því birtur hér.

 

Þriðjudaginn 5. júní síðastliðinn birti Valgarður Guðjónsson pistil á Eyjunni um nauðsyn þess að kjósa tvisvar vegna þess hversu margir eru í framboði til embættis forseta Íslands. Stingur hann upp á eins konar forkosningum, sem auðvelda eiga fólki að taka afstöðu. Hætt er við að slík forkosning yrði hálfgerður skrípaleikur, ef hefðbundnum aðferðum yrði breytt og gerði vart meira gagn en þær skoðanakannanir, sem birtar verða.

 

Pistill Valgarðs.

 

Það er óþarft að kjósa tvisvar. Stjórnlagaþing var á algerum villigötum þegar það lagði fram tillögur um kosningar til embættis forseta Íslands. Með því að kjósa tvisvar, ef fleiri en tveir eru í framboði, , er alls ekki tryggt, að sá sem nær kjöri í seinni umferðinni, sé í raun sá, sem meirihluti þjóðarinnar vildi helst sem forseta.

 

Frá því að íslenska fjármálakerfið hrundi árið 2008 hefur talsverð umræða orðið um það manna á meðal hvernig haga beri kosningum. Þrátt fyrir áhuga á umbótum hefur hvert óhappið rekið annað. Má þar nefna kosningu til stjórnlagaþings, ákvörðun Alþingis um það hverjir skyldu ákærðir fyrir Landsdómi og nú síðast kjör biskups.

Stjórnvöld virðast ekki hafa áttað sig á því að unnt er að greiða þremur eða fleiri kostum atkvæði á þann hátt að ekki þurfi að kjósa tvisvar, fái enginn meirihluta atkvæða í fyrstu umferð. Full ástæða er til að stofnanir samfélagsins og félög skoði með hvaða hætti sé hægt að einfalda kosningu og atkvæðagreiðslu þannig að menn geti tjáð vilja sinn og tilteknir kostir verði ekki afgreiddir fyrirfram. Til þess hentar aðferð sem nefnist raðval og lýst er í bókinni „Lýðræði með raðvali og sjóðvali" eftir Björn S. Stefánsson.

Raðval hefur reynst auðvelt í framkvæmd. Aðferðin hefur þann ótvíræða kost að úrslit fást þótt þrír eða fleiri kostir séu í boði.

            Sem dæmi má nefna kosningu þar sem fjórir eru í framboði. Kjósendur geta þá raðað þeim að vild. Sá sem kjósandi vill greiða eindregið brautargengi fær þá þrjú stig og svo koll af kolli þannig að sá sem kjósandi vill síst fær þá ekkert stig.

            Samanlagður stigafjöldi ræður úrslitum. Þá er ekki víst að sá sem flestir velja í fyrsta sæti nái kjöri, því að annar maður getur fengið það mörg stig í annað sæti að þau ríði baggamuninn. Þannig eru nokkrar líkur til að úrslitin verði með öðrum hætti, sé einungis ein kosning viðhöfð í stað tveggja þar sem í seinna skipti verði kosið um tvo efstu frambjóðendurna. Kosningar þar sem krafist er tveggja atkvæðagreiðslna, þegar enginn frambjóðandi nær meirihluta, gefa þar að auki ekki alls kostar rétta mynd af vilja kjósenda þar sem þeir fá yfirleitt aðeins að velja einn kost hverju sinni og það getur haft afdrifarík áhrif á framhaldið.

            Nokkur reynsla er af raðvali hér á landi. Þegar menn hafa nýtt sér kosti þessarar aðferðar hefur hún reynst auðveld í framkvæmd og almenningur hefur ekki átt í neinum vandræðum með að tileinka sér hana.

Með raðvali er hægt að leggja ýmis álitamál í dóm kjósenda með öðrum hætti en tíðkast hér á landi þar sem tveimur kostum er yfirleitt stillt upp hvorum gegn öðrum.

Með raðvali aukast enn fremur líkurnar á því að sá sem flestir sætta sig við, verði valinn.

            Þá er rétt að geta þess að lokum að raðval er þess eðlis að auðvelt er að móta skýrar reglur um notkun aðferðarinnar innan stjórnkerfisins, sveitarfélaga og samtaka. Aðferðin greiðir ótvírætt fyrir lausn mála og dregur úr hættunni á flokkadráttum.

            Frekari upplýsingar eru á síðunni http://abcd.is.

Þá skal nefnt að bókin Lýðræði með raðvali og sjóðvali fæst nú sem rafbók á emma.is og itunes.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband