Er bloggið mælikvarði á áhugamál almennings?

Ég hef tekið eftir því að fáir gera athugasemdir við skrif um málefni fatlaðra þegar þau ber á góma á blogginu. Sjaldan eða aldrei heyrist í forystumönnum samtaka fatlaðra og er því líkast sem þeir reyni að þegja þá, sem um þessi mál skrifa, í hel.

Fleiri hafa tekið eftir þessu. Þannig benti kona nokkur mér á að sjaldan væru gerðar athugasemdir við fréttir um málefni fatlaðra þegar mbl.is birtir um þær fréttir.

Fatlað fólk er minnihlutahópur hér á landi. Ýmsu hefur þokað áleiðis í málum hans að undanförnu em margt er þó ógert. Lög um málefni fatlaðra tryggja hópnum ekki raunverulegt jafnrétti og illa hefur fötluðu fólki gengið að reka réttar síns jafnvel þótt gróflega sé á því brotið.

Þótt hinn almenni borgari víki sér undan að hafa áhuga á þessum málum er samt rétt að hvetja fatlað fólk til að berjast áfram fyrir rétti sínum.

Á síðu þessari er birt bréf til forstjóra Vinnumálastofnunar ríkisins. Einhvern tíma hefði það þótt frétt ef komið hefði í ljós að ljósmæður gætu ekki greitt atkvæði með rafrænum hætti vegna þess að atkvæðaseðillinn væri með svo meinlegum villum að hann teldist ógildur. Hið sama má segja um eyðublöð Vinnumálastofnunar og fleiri fyrirtækja og opinberra stofnana. Þau eru flest óaðgengileg og því ætti það að vera skylda íslenskra fjölmiðla að fjalla um þessi mál á opinskáan hátt.

Óaðgengileg eyðublöð valda fötlun. Aðgengileg eyðublöð upphefja hana. Því aðgengilegra sem þjóðfélagið er á öllum sviðum því minni verður kostnaður þess vegna almannatrygginga. Viðhorf valda líka fötlun. Það á bæði við um konur og fatlað fólk.

Sennilega þarf að huga alvarlega að því að stofna ný baráttusamtök fatlaðra og verði helsta verkefni þeirra aðgengi í raun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er sem ég segi...að tala um þessi málefni er eins og að lemja hausnum við vegg. Sumir bera við sig hræðslu um að segja eitthvað vitlaust, öðrum er alveg sama og enn öðrum hentar að segja sem minnst. Þetta viðgengst ekki lengur í Bretlandi og því síður í USA þ.e. ef eitthvað er gert í málinu. Fatlaður einstaklingur hefur í öllum tilvikum unnið þau mál sem hann hefur sótt fyrir rétti hvað varðar aðgengi að upplýsingum.

Sigrún (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband