Flýgur fiskisagan

Áðan hringdi til mín felmtri sleginn fjárfestir sem er á þeim aldri að nota lítt eða ekki tölvu. Var hann á eyju við austanvert Miðjarðarhaf. Þangað höfðu borist þau tíðindi að Glitnir væri farinn á hausinn og sparifé fólks að mestu glatað.

Áðan var svo aftur hringt og rætt um atburðarás síðustu daga. Meðal annars bar á góma sölu Landsbankans á erlendri fjármálastarfsemi sinni. Kvað viðmælandi minn upp úr að enginn virtist segja satt þessa dagana og nú gengi fjöllunum hærra að Kaupþing ylti um í næstu viku.

Hvað gerir Seðlabankinn þá?

Ég greindi fjárfestinum við Miðjarðarhafið frá aturðarrásinni undanfarna daga eins og mér kemur hún fyrir sjónir. Kvaðst hann þá vilja vita hver hefði átt upphafið að ósköpunum í Vallarstræti í Nýju Jórvík. Þá vaknar önnur spurn: Hvert fóru peningarnir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Á þessi fjárfestir bréf í Glitni? Kaupþingi? Hvað er vandamálið?

Maður sem getur spókað sig 'austan við sól' hlýtur að hafa það mjög gott. 

Ingibjörg Magnúsdóttir, 2.10.2008 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband