Verður Páll Magnússon síðasti formaður Framsóknarflokksins?

Í dag er afmælisdagur Framsóknarflokksins en hann var stofnaður þennan dag árið 1916. Er hann því elstur íslenskra stjórnmálafokka enda kominn að fótum fram.

Það horfir til fjörugs landsþings framsóknarmanna í janúar þegar kjörin verður ný forysta flokksins. Nú hefur Siv ákveðið að bjóða sig til varaformanns og vill starfa með Páli Magnússyni.

Páll Magnússon hefur lengi langað í völd innan flokksins. Árið 1994, þegar undibúningur hófst vegna þingkosninga árið eftir reyndi hann að knésetja Siv strax þá um vorið, en hinn skarpgreindi lögfræðingur, Jóhann Pétur Sveinsson, var henni til ráðuneytis og varð Páll undir.

Stjórnmálaferill Sivjar er öllu farsælli en Páls og þess vegna hefði verið eðlilegt að Páll byði sig fram til varaformanns en Siv til formanns.

 

Síðasti róðurinn er sennilega að hefjast. Jafnvel Jónína Benediktsdóttir getur ekki hresst flokkinn við fremur en Kristinn H. Gunnarsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið yrði það nú Íslandi til heilla ef Páll sest í formannsstólinn og gengur þá endanlega milli bols og höfuðs þessa illkynja æxli á íslensku samfélagi.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 14:50

2 Smámynd: 365

Mikið rétt hjá þér, hvorki Jónína Ben eða Kristiinn H eru þeir bógar að geta komið bátnum aftur á réttan kjöl.  Það þarf einmitt menn eins og Pál.  Hann kemur ásamt öðru góðu fólki flokknum aftur í 20%.

365, 17.12.2008 kl. 16:25

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er Páll Magnússon samnefnari þeirra gilda sem flokkurinn þarf að endurvekja til að gera sig trúverðugan á ný? Ég er að tala um þau gildi sem lögð voru fyrir róða og skipt út fyrir græðgi og spillingu á starfstíma hans í trúnaðarstöðum. Mér er það stórlega til efs þó ég þekki ekki aðkomu hans sérstaklega að þeim málum sem ég vísa hér til. Kannski átti ég að þegja því ég þekki vel til þess fólks sem Páli standa nærri í fjölskyldutengslum og ber til þess hlýjan hug.

Árni Gunnarsson, 17.12.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband