Hæstu laun bæjarstjóra á Seltjarnarnesi

Á Seltjarnarnesi búa einungis rúmlega 4.000 manns. Þar eru úrlausnarefni annars eðlis en í bæjarfélögum sem standa frammi fyrir mikilli ásókn fólks eftir lóðum. Seltjarnarnes í raun fullbyggt.

Seltjarnarneskaupstaður greiðir hæstu laun bæjarstjóra á landinu. Starfið hefur aldrei verið auglýst heldur hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins setið einir að starfinu. Launin stjórnast því ekki af framboði og eftirspurn.

Væri ekki ráð að meirihluti bæjarstjórnar beitti sér fyrir því að laun bæjarstjórans yrðu færð til samræmis við það sem tíðkast hjá öðrum bæjarfélögum? Hvernig væri að miða við bæjarfélög eins og Vestmannaeyjar, eða jafnvel Kópavog? Þar eru launin mun lægri og endurspegla betur raunvirði þess sem greitt er fyrir.

Fari svo að meirihlutinn treysti sér ekki til að endurskoða laun bæjarstjórans þarf hann að gera grein fyrir ástæðu þess að Seltirningar greiði jafnhá laun og raun ber vitni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

við værum sennilega í sömu sporum og aðrir í kringum okkur ef framboð á byggingarlóðum hefði verið meira á nesinu- ég tel ekki að Seltjarnarnesið sé fullbyggt ennþá - ekki mikið eftir en nægjanlegt til endurnýjunar kynslóða af Seltjarnarnesinu. Annars er ég sammála þér með þessi laun sem eru fáránlega há og ekki í samræmi við neitt í dag - svo er það hitt að ég verð meira og meira fylgjandi sameiningu bæjarfélaga á stór reykjavíkursvæðinu - tel það mundi spara mikið og allar framkvæmdir yrðu setta í annað mat - sjáðu td HR sem nú er verið að byggja á útivistarparadís margra reykvíkinga - ég hefði talið að ákjósanlegri staður hefði verið í Garðabæ (eins og þeir sóttust eftir) eða allavegana ekki útaní henni Öskjuhlíð - jæja nóg um það

mbkv

Jón Snæ

Jón Snæbjörnsson, 31.7.2009 kl. 09:24

2 identicon

Tekjur sveitarstjóra eins og þær eru sýndar í Morgunblaðinu eru á margan hátt merkilegar.  Lægstu laun sveitarstjóra eru á Akranesi og eru þau aðeins rúmur helmingur af launum sveitarstjórans á Seltjarnarnesi.  Helstu tekjur sveitarfélaga eru af útsvarstekjum.  Gjöld sem íbúarnir greiða til sameiginlegra mála.  Ef tekjur sveitarstjóra eru reiknaðar sem krónur frá hverjum íbúa á ári er það sveitarstjórinn í Stykkishólmi sem dregur mest til sín eða sem nemur 10.196 krónum á íbúa á ári.  Ef litið er á mannfjölda er ljóst að sveitarstjórinn í Reykjavík er ódýrastur reiknað í tekjum frá íbúa á ári eða aðeins 100 krónur.  Nokkuð ljóst er að fámenn sveitarfélög launa æðsta embættismann sinnn vel.  Ætli launin hafi  verið ákveðin miðað við framboð og eftispurn?  Trúlega ekk alltaf auglýst eftir framkvæmdastjóra?

Læt töflu fylgjameð þessum útreikningum sem byggðir eru á töflunni í Morgunblaðinu:

 Tekjur sveitarstóra á mánuðiTekjur frá íbúa á áriÍbúar í janúar 2009
Stykkishólmur944,00010,1961,111
Snæfellsbær935,0006,5351,717
Dalvík823,0005,0721,947
Seltjarnarnes1,318,0003,5924,403
Fjarðabyggð1,004,0002,5514,723
Ísafjörður806,0002,4353,972
Mosfellsbær1,194,0001,7058,403
Árborg970,0001,4697,922
Garðabær1,205,0001,39610,358
Akranes720,0001,3076,609
Reykjanesbær1,045,00088514,172
Akureyri1,175,00080417,541
Hafnarfjörður1,087,00050525,850
Kópavogur1,085,00043429,976
Reykjavík1,001,000100119,547
    
Forsætisráðherra935,00035319,368

Emil (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 20:55

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

eg get ekki verið meira sammála þér -

hver fann annars upp á þessari ansk pólitík

Jón Snæbjörnsson, 1.8.2009 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband