Ríkir óvild í garð fatlaðra barna?

Í fréttum ríkissjónvarpsins í gærkvöld var greint frá því að fötluðu barni hefði verið neitað um skólavist í Tjarnarskóla. Mátti skilja á ´fréttinni að ástæðan væri sú að ekki væru sérkennarar starfandi við skólann.

Svipað ástand virðist komið upp í Landakotsskóla, en þar er víst fátt um sérkennara. Stjórnendur einkaskólanna hafa borið því við að ekki sé hægt að taka á móti þessum börnum vegna aðstöðuleysis og skólastjóri Tjarnarskóla þóttist ekki vita um nein lög eða reglugerðir sem skylduðu skólann til að taka við fötluðum börnum.

Nú er það svo að mikill meirihluti þess fjár, sem þarf til að starfrækja einkaskólana, þar á meðal laun kennaranna, koma úr opinberum sjóðum. Það hlýtur því að vera umhugsunarefni hvort styrkja eigi þessa skóla eigi þeir að starfa sem einkaskólar úrvalsnemenda sem stjórnendurnir velja sjálfir.

Hið sama gildir um einkareknu háskólana. Þeir geta vart talist einkareknir á meðan laun kennara koma að mestu eða öllu leyti úr ríkissjóði. Er ekki þarna komin prýðileg leið til þess að spara í rekstri hins opinbera og veita þeim fjármunum, sem þannig verða afgangs, til opinberra skóla?

Þegar kreppir að í þjóðfélaginu hefur það iðulega verið látið bitna á fötluðu fólki. Það missir fyrr vinnuna og nú veigra einkaskólarnir, sem styrktir eru af opinberu fé, sér við að taka þessum nemendum opnum örmum. Allur rökstuðningur stjórnenda Tjarnar- og Landakotsskóla virðist bera vott um sérhyggju í stað metnaðar, sérhyggju í garð þeirra sem eru taldir betur mega sín. Er þetta hið nýja Ísland sem koma skal? Er þessi stefna stjórnenda Landakotsskóla í anda þeirra sem stofnuðu skólann á sínum tíma?

Skyldi Kristur ekki spyrja stjórnendurna, þegar þeir koma fyrir auglit hans: "Hvar eru yðar minnstu bræður?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband