Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

Helgi VE 333

Sæll vertu. Þakka þér fyrir upplýsingarnar sem ég fékk hér um Helga VE 333. Fremst í litlu nesi á Barðaströnd, Sauðanesi, er að finna birðunginn úr skipinu, stjórnborðs megin. Ég er alin upp á svæðinu en vissi ekki fyrr en í vetur af hvaða báti þetta var. Ef þú hefur áhuga á ég mynd sem ég get sent þér (elvab@hi.is). Góðar kveðjur, Elva Björg

Elva Björg Einarsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 29. apr. 2017

IHJ

Góðan dag Arnþór, tek undir og þakka góð orð þín um Jónas útvarpsmann Jónasson. Ég gat ekki sett inn athugsemd þar í dagbókin og þá var bara að ganga inn í aðalstúkuna! Kv. Ingi Heiðmar

IHJ (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 10. des. 2011

Kveðja frá Jedda

Sæll frændi, Ég er búin að vera að kíkja á síðuna hjá þér og líst vel á. Ekki spillir fyrir að hlusta á tónlistina sem maður á svo miklar minningar um.Ég ætla ekki að þessu sinni að tala um krepputal enda höfum við það mun betur helur en margt annað fólk í heiminum t.a.m. hér í Sádí Arabíu. Bið að heilsa öllum heima kv Kalli Páls

Karl Pálsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 25. jan. 2009

Fallegt málverk og búningur

Sæll Arnþór Ég finn ekki önnur ráð til að hafa samband við þig, svo ég vona að þú afsakir að ég skrifa hér. Ég er að undirbúna rannsókn á íslenskum kvenbúningum og rakst á þetta ljómandi fallega málverk af Guðrúnu á síðunni hjá þér. Ég er að setja upp vefsíðu fyrir rannsóknina og langaði að spryja hvort ég mætti nota myndina að hluta á siðunni. Eins þætti mér vænt um að vita hvort þú hafir einhverjar upplýsingar um búinginnn sem hún er í, hvaðan hann var, hvar hann er niður kominn o.s.frv. þú getur sent mér póst á aspelund@bu.edu Sendi svo bestu jólakveðjur of fyrirfram þakkir Karl Aspelund aspelund@bu.edu

Karl Aspelund (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 23. des. 2008

Vodafone

Textavarpið komið inn - líka fyrir norrænu stöðvarnar

Sæll Arnþór Í ljósi þess að tímamörkin sem þú settir fyrir athugasemdir vegna blogg-færslu um Textavarp á sjónvarpsþjónstu gegnum ljósleiðara og ADSL bregð éég á það ráð skrifa þetta hér inn. Þú færir þetta kannski á réttan stað, ef þú getur. En alla vega, eftir að hafa fengið ábendingar um bloggfærslu Kristins Jóns var málið kannað, enda á Textavarpið að vera aðgengilegt þeim sem velja að fá sjónvarpsþjónustu um ljósleiðara og ADSL. Við þá athugunum kom í ljós bilun, sem olli því að útsendingar Textavarpsins á kerfinu lágu niðri. Það hefur nú verið lagfært og til viðbótar hefur textavarp stærstu sjónvarpsstöðvanna á Norðurlöndum einnig verið sett inn. Við skiljum vel mikilvægi þess að Textavarpið virki eins og fólk er vant. Að sama skapi vonum við, að notendur tæknilegum vandamálum skilning jafnvel þótt slíku fylgi óþægindi, sem við biðjumst að sjálfsögðu velvirðingar á. Kær kveðja, Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Vodafone

Vodafone, mán. 15. des. 2008

Davíð

Flott grein Arnþór, Varðandi Davíð, þá sagðir þú að "Vonandi þekkir hann sinn vitjunartíma", því miður er hans tími löngu kominn en hann ekki að skilja það. Vonandi á hann einn vin eftir einhversstaðar sem getur gert honum grein fyrir því að allir eru búnir að fá nóg af honum.

Jonas Tryggvson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 18. nóv. 2008

Einar Gústafssoon

Allt sem þú ert að segja um kvótakerfið er eins og talað út úr mínum munni. Möguleikinn til að leyðrétta þetta ruglkerfi aem hefur verið hér við lýði er einmitt núna. strax!!

Einar Gústafsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 16. nóv. 2008

Noh!

Þetta er eins og blað, Arnþór, alvörublað, af hverju bara stofnarðu ekki þitt eigið, og ég skal vera undirmaður þinn, ef ég má! Þín Aldís

Aldís Baldvinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 27. sept. 2008

Sjálfsákvörðunarréttur og tvískinnungur

Þakka þér fyrir skrif um Tíbet. Það er nú svo með sjálstæðisviðleitni þjóða, að sumar þjóðir virðast hafa engan rétt til sjálfsákvörðunar, t.d. Palestínumenn, Vestur-Saharabúar, Baskar, Abkhasar ofl. Í öðrum tilfellum er það stefna Vesturlanda að róa undir sundurlimun ríkja með því að styðja sjálfstæðishreyfingar, t.d. í Kosovo, Tsétsníu og nú í Tíbet. Íraksstríðið er einnig tilraun til að sundurlima landið.

Elías Davíðsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 27. mars 2008

Sæmundur Bjarnason

Reyndi að gera athugasemd.

Ég reyndi að gera athugasemd, en sé ekki að hún hafi komist til skila.

Sæmundur Bjarnason, þri. 25. mars 2008

Um Breiðfirðingaskáld

IHJ skrifaði Ein enn um Bjargeyju Svanninn listfengt ljóðager laga kýs úr dagsins óð þjóðarvitund vífsins er vænleg fyrir göfug ljóð. Sá þína góðu vísu um Bjargeyju í Mbl. í morgun, hún kveikti aðra eins og stundum vill verða. Kveðja frá Inga Heiðmari

Ingi Heiðmar Jónsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 13. mars 2008

Þakkir

Sæll Arnþór. Mér var bent á þessi fallegu skrif um verkið mitt. Kærar þakkir fyrir falleg orð. Það er alltaf gaman fyrir Íslendinga í útlöndum þegar landinn tekur manni vel. Kveðja, Veigar

Veigar (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 20. okt. 2007

Seinþroska bloggáhugamaður skrifar

Sæll "mista Heggason". Ég hef síðustu kvöld vafrað um bloggsíður, nokkuð sem mér hefur aldrei hugnast, en stend mig að því að hafa gaman að þessu. Hver veit nema ég gerist róttækur og framsækinn og fari sjálfur að blogga. Ég er sammála síðustu færslum þínum. Lifðu heill. Kv. "son of Mrs Heggason"

Árni Birgisson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 23. maí 2007

Framboð í 1. sæti Höbbý Rut

Kæri Arnþór,ég verð að segja að ég er mjög ánægð með umsögn þína um framboð aldraðra og öryrkja.Ég er sjálf öryrki og vil hér með bjóða mig fram í 1.sæti suðurkjördæmis,svo að eitthvað fari á hreifingu í þessum málum,þannig að ef þú veist hvert ég á að leita óska ég eftir hugmyndum frá þér.Ég er 30ára Grindavíkurmær í miklum ham um að breyta mörgu í landinu okkar til betri vega,svo að fólk fari að fá hrein svör frá alþingi og veit að eina leiðin til að breita kerfinu er innanfrá.Ég er búin að vera öryrki sjálf í ca10ár.Það væri mjög vel þegið ef þú hefur hugmyndir um hvernig ég á að bera mig að.Ef þú vilt hjálpa mér,að þú hefðir samband á (hra1644@hive.is) með fyrir fram þökk,Höbbý Rut.

Höbbý Rut (Óskráður), lau. 27. jan. 2007

Slysið í Ártúnsbrekkunni í gær

Síðan ég talaði við þig í símanum í kvöld hef ég lesið hvern pistilinn á fætur öðrum og haft ómælda ánægju af. Þakka þér fyrir að benda mér á blogsíðuna þína. Kær kveðja Sigrún

Sigrún Árnadóttir (Óskráður), mán. 25. sept. 2006

blindrakennsla á íslandi!!

Heill og sæll Arnþór, smá fréttir af honum Má litla sem er að byrja í skóla í Luxemburg. Már fær 15 sérkennslutíma með faglærðum kennara í blindrakennslu. Hér í Lux eru skólayfirvöld patt er ég skýri það út fyrir þeim að Már hefur ekki enn hafið nám í blindralestri og að verða 7ára gamall. Hafðu það sem allra best. kær kveðja, Gunnar Már gumasson@pt.lu

Gunnar Már Másson (Óskráður), sun. 10. sept. 2006

Sammála

Sæll Arnþór, ég er hjartanlega sammála þér með þessa þróun í aðalstjórn ÖBÍ. Það þarf að sporna við þessu. kveðja, Jón Helgi Gíslason fyrrverandi framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna á Íslandi

Jón Helgi Gíslason (Óskráður), fös. 28. apr. 2006

Til hamingju með síðuna

Sæll Arnþór. Hlakka til að fylgjast með blogginu hjá þér. Kveðja, Hlynur Már.

Hlynur Már Hreinsson (Óskráður), þri. 11. apr. 2006

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband