Athygli vekur að á heimasíðu VBS er frétt um endurhverf viðskipti bankans. Við lestur fréttarinnar kemur í ljós að mikil óvissa er um stöðu fyrirtækisins vegna þessara viðskipta og fer það allt eftir viðbrögðum nýju ríkisbankanna.
Á morgun er boðaður hluthafafundur í VBS og þar verður kjörin ný stjórn. Sennilega merkir þetta mikil aðsteðjandi vandræði því að beðið er um framboð til stjórnar.
Stjórnmál og samfélag | 3.11.2008 | 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hefur Jón Ásgeir leikið á Morgunblaðið? Telur hann, þegar 24 stundir hafa lagt upp laupana, að nú sé lag að ná Fréttablaðinu á strik?
Athygli vakti að á Morgunvaktinni á Rás eitt í morgun virtust menn ræða úreltar upplýsingar um stöðuna sem komin er upp vegna kaupa Rauðsólar á fjölmiðlun 365-samsteypunnar. Það er undarlegt í ljósi þess að Anna Kristín Jónsdóttir er glöggur fréttamaður og viðmælendur hennar gjörkunnugir aðstæðum. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu.
Stjórnmál og samfélag | 3.11.2008 | 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeim fjölgar nú stöðugt sem álíta að kjósa beri til alþingis svo fljótt sem auðið verður. Þá hljóta að verða mikil umskipti á þeim sem hasla sér völl á sviði stjórnmálanna. Foringjar flokkanna hljóta að víkja, þau Geir, Ingibjörg Sólrún, Steingrímur, Guðni og Guðjón Arnar.
Ætli Samfylkingin ekki að láta Sjálfstæðisflokkinn draga sig niður í svaðið verða ráðherrar flokksins að ákveða hvort þeir ætli að sleppa báðum höndum af stjórnarstýrinu í stað annarrar handarinnar.
Nokkrir ráðherrar hafa þegar dæmt sig úr leik með því að tala gegn betri vitund um ástand og stöðu íslensku bankanna fyrr á þessu ári. Þeir eru því sekari um meiri blekkingar gagnvart íslenskum almenningi og heiminum öllum en flestir aðrir. Er slíku fólki treystandi fyrir framhaldinu?
Kannski eru þeir jafnmikið eða meira vandamál en Davíð Oddsson.
Stjórnmál og samfélag | 3.11.2008 | 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 3.11.2008 | 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Árið 1972 var eitt vinsælasta lagið í Kína Mao formaður, þú ert hin rauða sól hjartna vorra. Það var lag í svipuðum stíl og Sjá dagar koma og hófst með forleik sem var vitnað í upphafsstef lagsins Austrið er rautt.
Nú á eftir að vita hvort Samkeppnisyfirlitið samþykki þennan gerning, en til skamms tíma litið gæti þetta orðið til þess að styrkja miðlana. Reyndar má búast við einhverjum breytingum í kjölfarið.
Fjölmiðlar greindu einnig frá því um helgina að þeir Jón Ásgeir og Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, teldu að fyrirtækið hefði kreppuna af og gæti komið Íslendingum til aðstoðar.
Ég hef ævinlega haft vissa samúð með þeim feðgum, Jóhannesi og Jóni Ásgeiri í baráttu þeirra við ofstækisöflin í Sjálfstæðisflokknum. Sennilega stafar það m.a. af því að fjölskylda mín kynntist slíkum tilþrifum á 5. og 6. áratugnum og þau hefðu getað endað með ósköpum hefði Ólafur Thors ekki gripið í taumana.
Það skildi þó aldrei verða að Jón Ásgeir yrði hin rauða sól hjartna þeirra sem stýra helstu fjölmiðlum landsins?
Árvakur merkir þann sem árla rís úr rekkju og vakir yfi eignum sínum. Rauðsól hlýtur að merkja fremur morgunroða en kvöldroða. Ég vona að ég guðlasti ekki þótt ég endi pistilinn svona:
Guð láti á gott vita!
Stjórnmál og samfélag | 2.11.2008 | 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leiðsögumaður nefndarinnar var kínverskur og eitthvað virðist hafa farið á milli mála um kynningu hans. Héldu nefndarmenn að Íslendingar nýttu nær eingöngu grunnvarma úr hverum, en sögðu að í Shandong væri jarðhiti djúpt í iðrum jarðar. Tókst með ágætum að leiðrétta þennan misskilning og hefur Kínversk-íslenska menningarfélagið boðist til að koma á nauðsynlegum tengslum milli íslenskra orkufyrirtækja og yfirvalda í Shandong-fylki.
Það er með öðrum orðum enginn bilbugur á Kím þótt komið sé á miðjan sextugsaldur - orkuríkt menningarfélag í orkuríku landi.
Efnahagsástandið hér á landi bar á góma og sögðust nefndarmenn hafa heyrt tröllasögur af ástandinu hér á landi. Gylfi Magnússon rakti með ágætum ástæður kreppunnar hér á landi og hlustuðu Kínverjar af athygli á útskýringarhans. Varð niðurstaða þeirra sú að þótt Íslendingar væru fórnarlömb alþjóðlegrar kreppu sem setti mark sitt á flest lönd þessa heims, læddist þó að þeim sá grunur að hér hlyti að hafa skort virkt eftirlit með bönkunum. Sjálfsagt hafa þeir túlkað þögn okkar sem samþykki við fullyrðingu sinni.
Stjórnmál og samfélag | 2.11.2008 | 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kristján er sennilega rómsterkastur íslenskra tenora og á köflum tókst honum svo vel upp að tárin brutust fram í augnkróka sumra áheyrenda enda var honum fagnað innilega og vel. Leikur hljómsveitarinnar var yfirleitt góður og stjórnin örugg. Einhvern veginn fannst mér samt 5. sinfónían gjörsneydd allri tilfinningu.
Hljómsveitin og Kristján gera það ekki endasleppt við þjóðina um þessar mundir. Leikur hljómsveitin í verslunarmiðstöðum og á þriðjudaginn geta Akureyringar hlakkað til að fá hana og Kristján í heimsókn.
Það var dálítið skemmtilegt að láta hugann reika á meðan "Sjá dagar koma" eftir þá Davíð Stefánsson og Sigurð Þórðarson var flutt. Kristján steytti hnefana til þess að leggja áherslu á boðskap kvæðisins og sanna fyrir áheyrendum að Íslendingar væru engir aukvisar þótt á móti blési og nokkrir spreðurbassar hefðu sólundað eigum okkar út um víðan völl enda stappaði hann stálinu í áheyrendur svo að þeir bólgnuðu út og sætin þrengdu að þeim. Andrúmsloftið var rafurmagnað og ég heyrði afa minn í Skuld hvísla handan eilífðarinnar: "Eg skal!" Og ég hugsaði sem aðrir: ÉG SKAL!!!!!!!!!!!! og ÞJÓÐIN SKAL!!!!!!!!!!!!
Stjórnmál og samfélag | 2.11.2008 | 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi frétt skal ekki rakin frekar en vitnað í fréttaskýrandann að ríkisstjórn Íslands hafi verið í hinum mestu vandræðum. Hefðu breskir sparifjáreigendur verið varaðir við hefði hafist áhlaup á bankana og þeir hrunið. Spyrja má hvort það hefði orðið verra en þegar er orðið.
Greinilegt er að þolinmæðin gagnvart Sjálfstæðisflokknum er þrotin og brestir virðast nú þegar komnir í innviði flokksins. Stöðugt fleiri krefjast nú kosninga.
Mér sýnist nú það ráð að forystumenn Samfylkingar og Vinstri grænna slíðri sverðin og ræði saman af alvöru um framhaldið. Greinilegt er að ekki er samstaða um peningamálastefnuna innan stjórnarflokkanna og pirrings er farið að gæta innan Samfylkingarinnar. Framsókn er úr leik enda ber hún álíka mikla ábyrgð á ástandinu og Sjálfstæðisflokkurinn.
Flestir hljóta að verða sammála um að Evrópusambandsaðild er engin lausn, a.m.k. ekki í bráð. Minnt skal á orð Egils sögu að konungsgarður sé víður inngöngu en þröngur þegar út skal haldið (ekki bein tilvitnun). Myntbandalag við aðrar þjóðir gæti hins vegar orðið skjótvirkari ávinningur en því hljóta að fylgja ráðstafanir í efnahagsmálum sem yrðu e.t.v. ekki of vinsælar en nauðsynlegar samt. Þeir sem aðhyllast aðild að Evrópusambandinu ættu alvarlega að íhuga þennan möguleika. Hann gæti orðið það skref sem nauðsynlegt er að stíga til þess að ná hér efnahagslegum stöðugleika.
Stjórnmál og samfélag | 1.11.2008 | 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 320107
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar