Jóhanna Kristjónsdóttir - brúarsmiður millum tveggja menningarheima

Mér er farið sem mörgum öðrum að ég get ekki leynt aðdáun minni á sumu fólki. Ein þeirra sem ég hef dáðst að lengi er Jóhanna Kristjonsdóttir.

Fyrst held ég að ég hafi hitt Jóhönnu fyrir tæpum 30 árum þegar ég kom með fréttatilkynningu niður á Morgunblað. Um það leyti var minnst Mustava Kemals Ataturks og vissi einhver blaðamaðurinn ekki hver hann var. Jóhanna undraðist nokkuð fáfræði þessa unga fólks en gerði það með svo góðlegum hætti að engum særindum olli.

Undanfarin ár hefur Jóhanna kynnt sér hagi kvenna í íslömskum löndum og skrifað fjölda greina þar sem hún lýsir ýmsu sem hefur borið fyrir augu og eyru hennar við Miðjarðarhafið austanvert. Og um helgina safnaði hún rúmlega 20 milljónum til þess að aðstoða fátæk börn í Sanaa.

Margvísleg vandamál steðja að í Jemen og Sanaa er þar ekki undanskilin. Ef ég man rétt þá ríkir þar mikill vatnsskortur því að grunnvatnið er á þrotum og sumir telja að þessi borg, sem einhverjir telja þá elstu í heimi, eigi nú ekki mörg ár eftir, leiðarlokin nálgist óðfluga.

Jóhanna situr ekki með hendur í skauti. Mætti hún verða mönnum eins og mér, sem láta allt of lítið gott af sér leiða, góð fyrirmynd til betra lífs. Til hamingju með árangurinn.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband