Samrunaferlið ber vott um siðblindu

Til hvers fór Svandís Svavarsdóttir af stað í leiðangur sinn gegn samrunaferli Geysis og REI?

Til hvers var stofnaður stýrihópur?

Samrunaferlið heldur áfram sem aldrei fyrr. Einhverjir hefðu nú látiðsetja lögbann á það á meðan lögmæti fundarins verður kannað. Komi í ljós að ekki verði hægt að rifta samrunanum vegna seinagangs og vingulsháttar borgarstjórnar Reykjavíkur þykist ég viss um að meirihluti Reykvíkinga gangi af göflunum.


Alþýðutónlist í Maastricht 25.6.2007

Þótt undirtektir hafi verið mjög litlar við blogvarpinu heldur það samt áfram.

Í dag gæði ég ykkur á heldur skemmtilegri tónlist frá Maastricht. Við Elín Árnadóttir, konan mín og Hringur Árnason, barnabarn okkar, vorum á ferð í Maastricht í júní 2005. Ég sótti þar námskeið um Evrópurétt fatlaðra. Því miður var þeim fjármunum kastað á glæ, en námskeiðið var athyglisvert og dvölin góð.

Eftir að námskeiðinu lauk fórum við á flakk um borgina. Ég var með hljóðpela og fyllti öðru hverju á hann. Við rákumst m.a. inn á lítið torg þar sem fólk dansaði af hjartans lyst. Uppi á sviði stóðu tveir menn. Annar lék á trommur og söng og hinn lék á harmoniku. Ég hljóðritaði þetta yndislega lag sem minnti mig á barnaböllin í Vestmannaeyjum í gamla daga.

Hluta lagsins verður útvarpað í pistli mínum í þættinum Vítt og breitt kl. 13:45 á fimmtudaginn kemur. Þar verða einnig birtar athygliserðar hljóðmyndir. Missið ekki af þessum einstæða viðburði!!!!!!!!


Ný tilraunaútgáfa af Supernova

Þá er 3. betaútgáfan af Supernova komin. Slysalaust gekk að setja hana upp. Mér finnst ætíð dálítið kvíðvænlegt að setja upp þessi forrit og þurfa að eyða öllu sem snertir stjórnun talgervilsins úr vélinni.

Bloggfærslur 19. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband