Krabbamein í blöðruhálskirtli - seinna viðtalið við Hauk Lárus Hauksson

Enn heldur bloggvarpið áfram með sínar vikulegu útsendingar. Nú er komið að seinna viðtalinu við Hauk Lárus Hauksson. Þar fjallar hann um Jane Plant og kenningar um mataræði, kynlíf og annað sem snertir baráttuna við sjúkdóminn.

Hlustendum er velkomið að bera fram óskir um efni sem þá langar að heyra í Bloggvarpinu.


Sanngirni Vodafones

Í dag barst mér frétt af því að Vodafone hefði ákveðið að afturkalla reikning sinn sem var gefinn út vegna þess að ég rifti þjónustusamningnum við fyrirtækið.

Starfsmenn Vodafones viðurkenna að ljósleiðari Gagnaveitunnar sé ekki fullreyndur og því sé varan gölluð.

Ég er feginn að þessu leiðindamáli er lokið. Fyrirtækið á þakkir skildar fyrir viðbrögðin.


Unaðslegir tónleikar kínverskra listamanna

Í gærkvöld sóttum við hjónin tónleika Þjóðlagasveitar Söngleikjastofnunar Wuhan-borgar, vinaborgar Kópavogs, sem haldnir voru í Salnum.

Tónleikarnir voru um flest hinir ágætustu. Nokkuð var þar af gamalkunnum verkum, svo sem Máninn speglast í tveimur lindum (einnig þýtt: Máninn speglast í tjörninni) eftir Hua Yanchun og fleira gott sem hér hefur heyrst á tónleikum áður. Mörg verkanna voru frá því um og eftir miðja síðustu öld en þó nokkur ný verk voru flutt.

Það var ánægjulegt að heyra dans Yaomanna flutt hér í fyrsta sinn á tónleikum. Ég hefði kosið að hljómsveitarútsetning verksins hefði verið flutt.

Í hljómsveitinni eru 14 hljóðfæraleikarar og 4 söngvarar. Er þetta sennilega fjölmennasti flokkur tónlistarmanna sem komið hefur hingað frá Kína. Tókst hljómsveitin á við nokkrar hljómsveitarútsetningar sem eru í raun ætlaðar stærri hljómsveitum, en allt gekk þetta vel.

Áheyrendur virtust verða einna hrifnastir af íslensku lögunum, en þau voru Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns, Litla flugan og Dagný eftir Sigfús Halldórsson. Það átti vel við því að Sigfús var heiðursborgari Kópavogsbæjar sem bráðum hlýtur að breytast í Kópavogsborg. Gunnar Birgisson hlýtur að sjá til þess.

Að lokum: Unnendur kínverskrar tónlistar auk þeirra sem unna góðri tónlist, eru hvattir til að láta ekki þessa tónleika kínversku hljómsveitarinnar fara framhjá sér.


Bloggfærslur 2. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband