Heilbrigð skynsemi

Hlutirnir gerast býsna hratt, jafnvel á meðan maður skrifar það sem manni datt í hug áðan, hefur það gerst sem hugsað var.

Auðvitað komust þeir Jón og Geir að þeirri niðurstöðu að ekki gæti orðið framhald á stjórnarsamstarfinu. Best að spá sem minnstu um framhaldið.


Hugsanleg skrumskæling lýðræðisins

Margir bíða nú eftir úrslitum viðræðna Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Einhvern veginn finnst mér að Sjálfstæðismenn hljóti að ræða alvarlega við aðra en Framsóknarmenn einkum vegna þess hvað forysta Framsóknarflokksins kemur löskuð út úr kosningunum með formann sem kjósendur höfnuðu og annan ráðherra til.

Flestum ber saman um að Jóni Sigurðssyni, formanni Framsóknarflokksins, sé margt vel gefið. Hann er í sömu klípunni og Árni Sigfússon hér um árið þegar Sjálfstæðisflokkurinn missti borgina. Meginmunurinn er þó sá að Árni var kjörinn borgarfulltrúi en Jóni var hafnað á þing.

Taki Geir þá ákvörðun að bjóða Framsóknarflokknum áframhaldandi samstarf, hlýtur hann að velta því fyrir sér hvort formaður Framsóknarflokksins geti setið í ráðheraembætti. Verði niðurstaðan sú að Framsóknarflokkurinn gerði um það kröfu og Geir léti undan, mætti þá ekki eins spyrja hvort fleiri, sem féllu í þingkosningunum, kæmust í ráðherrastól.

Niðurstaðan hlýtur því væntanlega að verða sú að stjórnarsamstarfi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks ljúki senn. Ef til vill hefur málið verið tafið til þess að Framsóknarmenn fái sjálfir ástæðu til þess að neita áframhaldandi samstarfi flokkanna nema Framsóknarflokkurinn taki þá ákvörðun að Jón setjist ekki á ráðherrastól.


Bloggfærslur 17. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband