Með strætó í vinnuna

Áður fyrr fór ég gjarnan með strætisvagni í vinnuna. Lengi stundaði ég starf mitt að Hamrahlíð 17 en síðar fluttist vettvangurinn suður í Kópavog. Allan þennan tíma, 1979-1997 fór ég allra minna ferða eða flestra á milli vinnustaðar og heimilis með strætisvagni. Oft lenti ég í ævintýrum eins og t.d. í hríðarbylnum í janúar 1983 þegar einhverjir töldu mig af. Ég er þó enn á dögum.

Eftir að ég hóf störf hjá Öryrkjabandalaginu árið 2000 fór ég endrum og eins í vinnuna með strætisvagni. Ég tók eftir að farþegum hafði fækkað og ekki var eins mikið lí í tuskunum og í upphafi 9. áratugarins þegar ótrúlegustu atburðir áttu sér stað í vögnunum og samskipti fólks voru mikil. Ég held að þróunin hafi byrjað fyrir alvöru þegar vagnarnir hættu að ganga á 15 mínútna fresti í upphafi 9. áratugarins en urðu þess í stað á 20 mínútna fresti.

Nú hefur stjórn Strætó ákveðið að fækka ferðum enn og jafnvel á álagstímum verða ferðirnar á hálftíma fresti í sumar. Í morgun, þegar ég hélt til vinnu minnar með strætó, skynjaði ég að eitthvað mikið var að. Örfáir voru á freli með vagtninum.

Ég lagði af stað upp úr kl. hálfátta í morgun vestan af Seltjarnarnesi með leið 11 og fór úr vagninum á Hlemmi. Þar hitti ég umferliskennara frá sjónstöð Íslands og réðumst við í það leita að leið nr. 15. Þá kom í ljós að biðstöðinni við Hlemm hefur verið breytt og vissi ég svo sem um þær breytingar sem voru gerðar í sambandi við leiðakerfisbreytinguna miklu fyrir tveimur árum. Hitt hafði mér ekki dottið í hug að breytingarnar væru jafnafgerandi fyrir glóruleysingja eins og mig. Fátt eru um kennileiti og mjög erfitt að átta sig á aðstæðum. Þessu hafa forráðamenn Strætó alveg gleymt og Blindrafélagið hefur einnig gleymt því eða því ekki tekist að fá fram neinar úrbætur.

En, sem sagt, við fórum með leið 5 upp að Hádegismóum og gekk það áfallalaust. Vagnarnir eru hins vegar svo illa stilltir saman að leið 5 virðist fara frá Hlemmi skömmu áður en a.m.k. tveir vagnar koma vestan úr bæ og þurfa menn því að bíða eftir henni í 22 mínútur.

Ekki veit ég hvers konar óskapnaður strætisvagnakerfið er orðið. Stofnleiðirnar eru hálfgerðar hverfisleiðir og það, sem var lagt upp með, virðist ekki hafa tekist. Það tekur mig frá 50 mínútum upp í 70 mínútur að komast með strætisvagni vestan af Seltjarnarnesi að Hádegismóum. Ætlum við hjónin værum ekki álíka lengi eða heldur skemur að hjóla þessa vegalengd.

Ég efast um að sá sparnaður í rekstri Strætó með færri ferðum skili öðrum árangri en þeim að verða einn naglinn í líkkistu þessa mæta fyrirtækis og draga þar með úr vægi almenningssamgangna í Reykjavík. Vonandi verð ég ekki sannspár. En betur má nýi borgarstjórnarmeirihlutinn ef duga skal.


Bloggfærslur 7. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband