Meðan okkar þjóðar þing
þarf að halda á lausnum
enginn grætur auðkýfing
einan sér á hausnum.
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2008 | 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4416420/4
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2008 | 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bretar hafa verið þekktir fyrir annað gagnvart Íslendingum en að vera aumingjagóðir. Því dettur engum í hug að gráta af þakklæti vegna vorkunnar breska sendirherrans hjá SÞ.
![]() |
Bretar vorkenna Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2008 | 19:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ísland hefur talsvert verið í fréttum kínverska alþjóðaútvarpsins, China Radio International.
Fjallað hefur verið um íslenskar íþróttir og einnig greint frá lokun íslenskra banka í Bretlandi. Frá því er greint að sparifjáreigendur séu öruggir um eigur sínar og sé þetta haft eftir Alister Darling, en hann beri fyrir sig yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda. Ekki er minnst á þá hetjudáð breskra yfirvalda að knésetja Kauping með lögum um varnir gegn hryðjuverkamönnum.
Ekki fann ég neitt í Dagblaði alþýðunnar um þessi mál. Þar greinir frá því að 15. þing Kínverska verkalýðssambandsins hefjist í dag og eru verkamenn hvattir af forystu Kommúnistaflokksins til þess að tryggja áframhaldandi vöxt velferðarríkisins í Kína.
Þá greinir frá því að fyrirtækið Smart Union í Kanton, sem framleiðir leikföng fyrir Vesturlandamarkað, sé nú farið á hausinn, en það tapaði 25 milljónum Bandaríkjadala á fyrri hluta ársins. Ekki náðist í forstjórann sem virtist horfinn af yfirborði jarðar. Þúsundir verkamanna hafa misst vinnuna.
Blaðið greinir einnig frá því að aðsókn vestrænna kaupsýslumanna að vörusýningunni í Kanton sé nú miklu minni en áður og að mörg kínversk fyrirtæki, sem skipta að mestu við Bandaríkin og Evrópusambandið, horfi fram á gríðarlegan samdrátt. Hið sama verði þó ekki sagt um þau fyrirtæki sem framleiða tæknivarning handa innanlandsmarkaði.
Þá segir blaðið frá því að Kínverjar séu nú komnir í alþjóðlega staðlaráðið og er það talið munu bæta kínverska framleiðslu.
Í gær var haldinn handsápudagur í Kína. Þar var fólk hvatt til að þvo sér með handsápu eftir salernisferðir og á undan máltíðum. Segir Dagblað alþýðunnar að fjöldi barna deyi úr niðurgangi og lungnabólgu áður en þau ná 5 ára aldri vegna skorts á hreinlæti.
Að lokum er greint frá því að 80% kínverskra unglinga hafi nú aðgang að Netinu.
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2008 | 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vefurinn | 17.10.2008 | 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nú vænta margir þess að eitthvað gott komi út úr þeim vanda sem við erum stödd í. Hvernig væri að brydda upp á nýskipan öryggismála á norðurslóðum. Ísland sækist eftir vernd nokkurra ríkja: Norðurlandanna, Rússlands og Kanada. Þar með yrði viss einangrun Rússa rofin og nýr grunnur lagður að betri heimsskipan. Verði forseta Íslands falið að vinna þessum hugmyndum brautargengi enda á hann vini víða.
Reynsla okkar af Bretum er löng og oft slæm. Bandaríkjamenn sviku meira að segja Davíð vin sinn í tryggðum og fóru þegar þeim hentaði. Ekki grét ég þann flutning eins og Garðar Harðarson frá Stöðvarfirði, þegar Guðjón Smári, framkvæmdastjóri á Stöðvarfirði, flutti brott af staðnum. Orti þá Garðar í raunum sínum þessa harmi þrungnu rímspellsvísu:
"Í dag við grátum Guðjón Smára,
genginn burt til Norðfjarðar.
Hrynja af hvörmum tonnin tára
er tætir hann upp Oddsskarðið."
Stjórnmál og samfélag | 17.10.2008 | 07:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 17.10.2008 | 07:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 17. október 2008
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 320102
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar