Þó að bankamálaráðherra Framsóknarflokksins sé ekki úr Reykjavík geta framsóknarmenn í Reykjavík ekki firrt sig þeirri ábyrgð sem þeir bera á ástandinu. Eða hverjir tóku þátt í því á 10. áratugnum af öllum sínum mætti að eyðileggja kerfi almannatrygginga? Spyr sá sem ekki veit. Það er holur hljómur í þessari ályktun.
Stjórnmál og samfélag | 22.10.2008 | 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sigurður er hugmyndaríkur og hefur gengið afar vel að skara eld að eigin köku. Hann hefur enn tækifæri til að söðla um og reisa sér óbrotgjarnan minnisvarða.
Sigurðurmyndi sýna stórhug gæfi hann íslensku þjóðinni húsið undir fangelsi. Sagt er að salerni fylgi hverju herbergi og í kjallaranum sé víngeymsla á stærð við meðalíbúð.
Gjöfinni fylgi að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á húsinu á kostnað gefanda og verði séð svo um að sem best fari um fangana.
Þar með gætu Íslendingar kennt öðrum þjóðum hvernig á að reisa fangelsi sem eru öllum samboðin.
Stjórnmál og samfélag | 22.10.2008 | 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hugsanlega er hér um saknæmt atferli að ræða og því enn eitt vitni um brjálað viðskiptasiðferði þar á bæ. Sjálfsagt er að þetta mál verði leitt til lykta og sá eða þeir, sem ábyrgðina bera, látnir svara til saka.
Það gengur ekki að dæma fólk í fangelsi fyrir að hnupla einu brauði á meðan stórþjófarnir sleppa. Helgi Benediktsson sagði einhvern tíma við einhvern kunningja sinn að hann skyldi aldrei stela neinu nema það væri þess virði að stela því. Sjö milljarðar íslenskra króna nálgast kannski að vera þess virði að þeim sé stolið ef menn eru á annað borð þannig hugsandi.
Stjórnmál og samfélag | 22.10.2008 | 08:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi unga kona var nýkomin frá Japan þar sem hún tók þátt í kynningu á rithöfundinum Nonna en hann slæddist þangað fyrir 70 árum. Þar er hann nú flestum gleymdur en Íslendingar vilja ráða bót á því.
Konan greindi frá því að Japanar hefðu vitað allt um fjármálaglundroðann hérlendis og þegar til Kaupmannahafnar kom tóku þeir ferðafélagarnir sig til og töluðu ensku í stað íslensku til þess að ekki kæmist upp um þjóðerni þeirra.
Ég tel mig tiltölulega saklausan af þeim ósköpum sem dunið hafa á okkur. Ég hef undanfarin ár hneykslast á því að stýrivextir skyldu hækkaðir í stað þess að bindiskylda bankanna væri aukin. Ýmislegt fleira hef ég sagt sem margir geta vottað. Þó hef ég aldrei haldið því fram að ég sé einhver fjármálaspekingur. Þó held ég að ég hefði vart orðið ónýtari seðlabankastjóri en Davíð Oddsson.
Þessi unga kona, sem þorði ekki að tala íslensku í Kaupmannahöfn, ætti að vera stolt af sjálfri sér og þjóðerni sínu. Hins vegar þarf hún ekki að vera stolt af öllum Íslendingum. Enginn ætti að fyrirverða sig fyrir þjóðerni sitt og uppruna.
Þótt neyðarlegar fréttir birtist nú víða um Íslendinga hafa Kínverjar fjallað af varfærni um ástandið hérlendis. Í morgun barst mér bréf frá Hong Kong þar sem mér voru boðin sjónhjálpartæki til kaups. Svaraði ég því til að ég myndi athuga málið þegar kreppunni linnti.
Ég er viss um að þið hafið ykkur upp úr þessu því að þið eruð öflugir, Íslendingar, var svarið sem ég fékk.
Stjórnmál og samfélag | 22.10.2008 | 08:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 22. október 2008
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 320102
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar