Fílabeinsturn ráherrans

Mér barst tölvupóstur áðan sem ég set innan tilvitnunarmerkja. Þar kemur fram að viðskiptaráðhera virðist annaðhvort hafa verið grandalaus um það sem var í vændum eða lokað bæði augum og eyrum fyrir því sem var að gerast og þegar hafði verið skrifað um í blöðum eins og Morgunblaðinu.

"Eftirfarandi var sent á skrafsíður starfsmanna HÍ og LbhÍ. Sendandinn var Gísli Már Gíslason prófessor í líffræði. Björgvin Guðni Sigurðsson Gullkorn af heimasíðu ráðherra (Síðunni hefur nú verið lokað) 5. ágúst 2008 Þegar KB banki opnaði útibú í Lúxemborg fyrir nokkrum árum óraði líklega engan fyrir því hve vel íslensku fjármálafyrirtækjunum ætti eftir að ganga við að hasla sér völl á erlendri grundu. Ævintýralega vel er kannski rétta orðið yfir það. Kjarkur, þor og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu. Ekki síst þegar lagt er saman við aðra útrás Íslendinga erlendis í verslun, iðnaði og þjónustu ýmiskonar. Auðvitað skortir ekki úrtölur eða þá sem telja sig knúna til að tala útrás og fjárfestingarævintýri Íslendinga erlendis niður. Þannig eru nú hlutirnir einu sinni og því er það mikilvægt nú þegar hægir tímabundið á útrásinni vegna þrenginga á erlendum mörkuðum að halda frábærum árangri þessara flaggskipa atvinnulífsins okkar ríkulega til haga. Þetta eru okkar voldugustu fyrirtæki og nokkrar af helstu undirstöðum efnahagskerfis okkar til lengri tíma. Í árslok 2006 má ætla að hlutdeild fjármálafyrirtækja hafi numið um 10% af landsframleiðslu og verðmæti útflutnings þekkingar og þjónustu um 60 milljörðum. Í fyrra komu 52% af tekjum viðskiptabankanna erlendis frá og þótt erlendar tekjur vátryggingafélaga séu enn ekki svipur hjá sjón miðað við viðskiptabankanna stefnir þróunin þar í sömu átt. Þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að útrás sjármálageirans hefur orðið afgerandi þýðingu í okkar efnahagslífi. Íslensku bankarnir hafa sums staðar sætt nokkurri gagnrýni undanfarið erlendis. Sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Um forsendur gagnrýninnar sem skapaðist vorið 2006 hefur verið fjallað um rækilega, meðal annars af Fredirik Mishkin og Tryggva Þór Herbertssyni. Niðurstaðan er sú að gagnrýnin var að verulegu leiti tilhæfulaus. Hinsvegar var ljóst að bankarnir þyrftu að fjármagna sig betur og til lengri tíma og að koma þyrfti betur á framfæri upplýsingum um rekstur þeirra. Samskonar gagnrýnir skýtur upp kollinum á nú í kjölfar þeirrar lausafjárkreppu sem kennd er við undirmálslán. Hún er þó ekki einskorðuð við íslenska banka, þar sem vandinn er alþjóðlegur. Athygli vekur þó að háværasta gagnrýnin kemur frá samkeppnisaðilum bankanna á erlendum vettvangi. Löngum hafa sérfræðingar Danske bank haft horni síðu íslensku bankanna en fyrir skemmstu bættust Finnskir bankamenn í “grátkórinn”. Aðstoðarmenn Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslensku bönkunum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að mynda ástæðu til að ætla að staðan tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti. Gagnrýnin hlýtur því að skoðast í því samhengi að a.m.k. tveir íslenskir bankar, Glitnir og Kaupþing, hafa hafi sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi, með svipuðum hætti og Landsbankinn hefur áður gert í Bretlandi. Þessi markaðssókn kemur sér vitanlega illa fyrir Nordea sem til þessa hefur ekki treyst sér til að bjóða jafn góð kjör og íslensku bankarnir bjóða. Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslensku bankakerfið sé mjög stöndugt. Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leiti til sem finnskar reglur þar að lútandi veita betri réttindi en íslenkar myndu bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einvherjir bankar kæmust í lausafjárskort. Því er rétt að halda því til haga sem rétt er þegar reynt er að kasta rýrð á fjármálastofnanir okkar þegar kreppir að. Til að fara yfir stöðuna og til að efla samvinnu stjórnvalda og fjármálafyrirtækja um fjárfestingar erlendis mun Viðskiptaráðuneytið kalla til fundar með Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráðs í janúar. Ætlunin er að skapa varanlegan vettvang fyrir slíkt samstarf og verður janúarfundurinn fyrsta skrefið í þá átt. BjorgvinGSig Heimasíðu Björgvins G. Sigurðarsonar "


Ísraelsk stjórnvöld stunda hryðjuverk og fjöldamorð

Jafnan berast ótíðindi frá Ísrael. Palestínumönnum er haldið í herkví og þeim berast ekki lífsnauðsynjar. Helstu auðlindir þeirra hafa verið teknar af þeim og svo virðist sem verið sé að murka úr þeim lífið með skipulögðum hætti.

Ísraelsmenn hafa lengi viljað halda á loft minningunni um helför Nasista á hendur Gyðingum í seinna stríði. Það mætti halda að þau hafi ákveðið að læra af misgerðum Nasistanna og beita þeim gegn þeim er síst skyldi.

Því hefur áður verið haldið fram á þessum síðum að Ísraelsmenn hafi jafnan kúgað og undirokað þjóðirnar sem bjuggu fyrir á þessu svæði. Ég hef verið sakaður um Gyðingahatur og þaðan af annarlegri hvatir. Skrif mín hafa því miður verið byggð á staðreyndum.

Nasisti er löngu orðið skammaryrði í íslenskri tungu. Niðurstaða mín er sú að ísraelsk stjórnvöld séu verri en flestir þeir leiðtogar sem stýrðu Þýskalandi á tímum þriðja ríkisins.


Hverjir skulda Þjóðverjum?

Komið hefur fram að Íslendingar skuldi þýskum lánastofnunum um 23 milljarða króna. Það er dágóð upphæð. Hverjir eru skuldunautarnir og verða þeir látnir sæta ábyrgð?

Endurnýjun stjórnmálamanna

Það heyrist nú hvarvegna að Íslendingar hafi misst trú á stjórnmálamönnum og í raun séu fáir saklausir vegna þess ástands sem ríkir nú í þjóðfélaginu.

Ýmsir, sem ég hef rætt við, segjast ætla að sitja heima þegar kosið verður næst til Alþingis. Í raun er slík afstaða afleit því að með því móti firra menn sig allri ábyrgð og taka þátt í að fljóta sofandi að feigðarósi.

Stjórnálaumræða, sem byggð er á rökum þar sem rædd verða ný viðmið, er líklegri til að skila árangri en upphlaup og upphrópanir. Komið hefur fram tillaga um Þingvallafund. Hún er ekki svo afleit. Þingvallafundur gæti orðið til þess að skýra línur í íslenskum þjóðmálum og til Þingvalla hefur þjóðin litið á sínum merkustu stundum.


Skítalaun bankastarfsmanna

Þetta er ekki skemmtileg fyrirsögn en því miður rétt eftir höfð.

Eitthvað urðu vinkonur hennar hissa á þessari afstöðu og síðan reiðar. Leystist saumaklúbburinn upp í kjölfar þess að aðrar konur voru ekki sáttar við skítalaun vinkonu sinnar.

Vafalaust þykir ýmsum sárt að þurfa að horfa fram á launalækkun. Laun bankastarfsmanna, a.m.k. þeirra, sem eru yfir almenna starfsmenn hafnir, hafa verið úr samhengi við alla þróun hér á landi. Það er í engu samræmi við tíðarandann að leyna launum nýrra bankastjóra, jafnvel þótt þeir séu konur. Þeirri spurningu hefur verið varpað fram hvort það sé gert vegna þess að konurnar, sem stýra Landsbankanum og Glitni, séu á lægri launum en karlmaðurinn sem stýrir Kaupþingi.

Þjóðin kallar eftir upplýsingum og hefur skömm á leynimakki. Laun bankastjóra eru ekki þess eðlis að um þau eigi að ríkja leynd.


Bloggfærslur 24. október 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband