Enn lengist syndaregistur Sjálfstæðisflokksins - leyniskýrsla fjármálaráðuneytisins

Spegillinn átti í kvöld viðtal við Einar Árnason, hagfræðing, þar sem hann greindi frá nýrri skýrslu fjármálaráðuneytisins. Þar kemur fram að skattbyrði á lágtekjufólk hefur aukist mest hér á landi á undanförnum áratug af öllum löndum OECD. Er þetta í algerri mótsögn við það sem ráðuneytið hélt fram í deilum sínum við Öryrkjabandalag Íslands og Landsamband eldriborgara.

Fjármálaráðherra gekk svo langt haustið 2005 að væna Stefán Ólafsson, prófessor, um rangfærslur í skýrslu sem Stefán samdi á vegum Öryrkjabandalags Íslands, en skýrsla sú var andsvar bandalagsins við skýrslu og tillögum Tryggva Þórs Herbertssonar um velferðarkerfið.

Nú sýna skýrslur svo að ekki verður um villst að Öryrkjabandalag Íslands hafði rétt fyrir sér og annaðhvort var Árni Mathiesen ósannindamaður eða hann hreinlega skildi ekki um hvað málið snerist.

Hvað ætlar Öryrkjabandalagið að gera nú? Og ætlar Árni Mathiesen að biðjast afsökunar á orðum sínum og hegðan á þessum tíma? Hvað um aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem fóru mikinn með brigslyrðum sínum á hendur Öryrkjabandalaginu og Landsambandi eldriborgara?

Ég skora á ÖBÍ og LBE að beita sér fyrir því að Árni Mathiesen veði látinn segja af sér. Hann er gersamlega rúinn öllu trausti.

Skýrsluna má sjá á vefnum www.bsrb.is


Eru ráðherrarnir ósannindamenn?

Í fréttum RÚV var greint frá því nú áðan að fjölmiðlafulltrúi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins hefði sagt að það væri alfarið ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar að halda efnahagsáætlun sinni leyndri.

Forystumenn ríkisstjórnarinnar héldu því blákalt fram á föstudaginn var að ekki mætti skýra frá einstökum liðum efnahagsáætlunarinnar fyrir en lán sjóðsins hefði verið afgreitt. Nú virðist sem þetta sé ósatt.

Atvinnurekandi, sen hefði haft fólk í vinnu hjá sér, sem lygi jafnmiklu og ríkisstjórnin hefur gert að undanförnu, myndi losa sig við þessa starfsmenn á augabragði.

Hvað vill þjóðin?

Þið eruð, gott fólk, að leiða okkur á blindgötu með þessu athæfi.

Sannleikurinn er sagna bestur.

Vek athygli á heimasíðunni www.kjosa.is


Geta Kínverjar leyst krónubréfavandann?


Almenningi er nú meira en nóg boðið. Stjórnvöld verða að upplýsa Alþingi og almenning um ýmis skilyrði sem eru uppi á borðinu vegna samninganna við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Stýrivaxtahækkunin kom eins og rothögg og virðist vera ávísun á að framlengja það hættuástand sem krónubréfin sköpuðu. Fjölmargir efast um að hún hafi mikil áhrif á eftirspurn eftir íslenskum krónum.
Lilja Mósesdóttir hefur lýst því að þessi aðgerð sé í varasöm. Hvers vegna er hagfræðingum eins og henni ekki gefið tækifæri til þess að gera tillögur um nýja fjármálastefnu? Ástandið er orðið svo grafalvarlegt að setja verður stjórnendur Seðlabankans frá hið fyrsta.
Athygli hefur vakið við hverja er nú rætt vegna vanda okkar. Kínverjar eiga digrasta gjaldeyrisvarasjóð heims og hafa verið Íslendingum vinveittir um áratuga skeið. Þeir urðu fyrstir þjóða utan Norðurlanda til að veita Íslendingum fjárhagsstyrk vegna Eyjagossins 1973.
Hefur engum dottið í hug að leita eftir aðstoð þeirra til þess að létta krónubréfavandanum af Íslendingum? Væri það ekki skárri aðgerð en stýrivaxtahækkunin sem mun valda skyndilegu verðbólguskoti og rýra hag margra?

Spilaborgin fallin - in memoriam


Þá er Sterling orðið gjaldþrota. Þessi svikamylla er besta dæmið um það hvernig íslenskir athafnamenn töluðu upp gengi fyrirtækja sem voru lítils virði. Og almenningur situr enn eftir með sárt ennið!


Pólverjar flykkjast úr landi

Nú flykkjast Pólverjar heim eftir að hafa dvalið hér sumir árum saman. Pólverjar hafa ásamt öðrum útlendingum haldið uppi íslenska velferðarsamfélaginu. Nú, þegar harðnar á dalnum á Íslandi vill svo til að aðstæður hafa batnað í Póllandi og leita þeir því á ný þangað. Íslendingar hljóta að þakka þeim veitta þjónustu og óska þess um leið að Pólland nái að veita þeim þau tækifæri sem þeim ber.

Bloggfærslur 29. október 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband