Ný neyðarlög um kvótakerfið

Nú eiga þingmenn úr öllum flokkum að sammælast um algeran uppskurð á kótakerfinu. Skila á auðlindinni til þjóðarinnar og taka upp nýtt leigufyrirkomulag.

Nokkrar fjölskyldur hér á landi leigja frá sér kvótann og lifa af afrakstrinum. Þannig hirða þær arðinn af því sem þeim var fengið upphaflega vegna veiðireynslu eða vegna þess sem þær hafa getað keypt af öðrum.

Þeir sem róa ekki eiga heldur ekki að njóta arðráns sem stundað er með því að okra á þeim sem afla gjaldeyris. Krafan um afnám þessa kerfis verður æ háværari sem lengra líður.


Landsþingum flýtt

Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur hafa ákveðið að flýta landsþingum sínum fram í janúar. Greinilegt er að þar á bæ búast menn jafnvel við kosningum og ætla að veðja á Evrópusambandið.

Ekki verður því hér spáð hvort forysta flokkanna verði endurnýjuð. Það hlýtur þó að hitna verulega undir forystu flokkanna og þá ekki síst Sjálfstæðisflokksins. Þar eru menn svo tengdir afleiðingum efnahagshrunsins að ólíklegt er að þeir hafist upp úr sömu gömlu hjólförunum.

Vinstri grænir taka það sjálfsagt rólega enda hafa þeir ekki setið við kjötkatlana nema að litlu leyti. En Samfylkingin virðist ætla að fljóta sofandi að feigðarósi. Þar á bæ tóku menn þó ekki síður þátt í blekkingarleiknun em fólk í öðrum flokkum.

Forysta Samfylkingarinnar hefur sýnt að undanförnu hversu veik hún er. Varaformaður og formaður virðast ekki sammælast um skoðanir og tala í austur og vestur. Með því mylja þau undan fylgi sínu. Leitt er að fylgjast með slíku valdatafli.


Sparnaður utanríkisráðuneytisins

Utanríkisráðuneytið ætlar að spara tvo milljarða í útgjöldum næsta árs. Samantekt fjölmiðla sýnir að hér er fyrst og fremst um að ræða að horfið er frá áætluðum útgjöldum til þróunarsamvinnu auk dálítils sparnaðar á öðrum sviðum.

Það versta er þó að þróunaraðstoðin lendir fyrst og fremst undir sparnaðarhnífnum. Það er eins og verið sé að hegna nokkrum þjóðum fyrir að Íslendingar komust ekki í öryggisráð SÞ.


Bloggfærslur 16. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband