Sannleikurinn afhjúpaður

Þeir sem hafa áhuga á þjóðmálaumræðu og staðreyndum ættu að lesa samantekt Morgunblaðsins um ummæli fjölmargra um íslensku bankana. Birt eru nokkur ummæli Ragnars Önundarsonar og fleiri auk fullyrðinga manna eins og Geirs Haarde, Davíðs Oddssonar, Jónasar Fr. Jónssonar og Þorgerðar Katrínar gunnarsdóttur um bankakerfið og gagnrýnendur þess. Miðað við það sem Davíð Oddsson segist hafa vitað er sannleikurinn um hann einna verstur og engu skárri er hlutur Jónasar. Niðurstaðan er 0 í einkunn. Því verður vart trúað að samtryggingamafían á Íslandi sé svo sterk a hún standist það áhlaup sem hlýtur að verða gert á hana úr öllum flokkum. Hreinsa þarf til. Þá er pistill Guðfríðar Lilju um hringekjuna einkar skemmtilegur og athyglisverður.

Bloggfærslur 22. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband