Bankaleyndin stenst ekki

Jón Ásgeir Jóhannesson fór hamförum í ríkisfjölmiðlunum vegna greinar Agnesar Bragadóttur í kvöld. Björn Bjarnason lýsir ótrúverðugleik Baugsmiðlanna sem skýra ekki frá þessu máli og Vilhjálmur Bjarnason segir að athuganir sínar leiði í ljós að upplýsingar Agnesar séu sennilega réttar.

Agnes hefur stundum áður klórað hrúðrið af ósómasárum svindilbrasks á Íslandi. Í fyrra gengu nokkrir útgerðarmenn af göflunum vegna greina sem hún skrifaði um löndun framhjá kvóta en engum þeirra tókst að sanna að hún færi með ósatt mál.

Nú eru íslenskir bankar orðnir að almenningsstofnunum. Þegar milljarðar eru annars vegar dugar engin bankaleynd. Almenningur eða í minnsta lagi stjórnvöld og þingnefndir eiga rétt á að fá óheftan aðgang að þeim gögnum sem liggja til grundvallar lánum til einstaklinga og þeim tryggingum sem settar eru. Því lýsi ég mig sammála Birni Bjarnasyni um afnám bankaleyndarinnar.

Ég hef áður vitnað í orð Maos sem sagði að enginn skóli þrifist bak við læstar dyr. Hið sama á nú við um íslensku bankana. Og létta verður leyndinni af því sem gerst hefur þar undanfarin ár til þess að réttir menn verði sóttir til saka fyrir það sem þeir hafa gert þjóðinni.


Bloggfærslur 23. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband