Fjárfestar hafa áhuga á Árvakri

Ekki kemur á óvart að ýmsir lykilstjórnendur og starfsmenn Árvakurs vilji slá skjaldborg um fyrirtækið. Eins og starfsemi þessa merka fjölmiðlafyrirtækis hefur þróast vilja vafalítið margir taka þátt í að slá skjaldborg um það. Öflugur fjölmiðill eins og Morgunblaðið getur og hefur verið aflvaki framfara. Fjölmiðlarnir sem tengjast blaðinu eru í raun þeir einu sem virðast telja sig bera einhverja samfélagsábyrgð hér á landi. Um það deila fáir.

Einkafulltrúi sjálfs sín í borgarstjórn Reykjavíkur

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi sjálfs sín, fór mikinn á fundi borgarráðs í fyrradag og bókaði margt.
Ólafur er velviljaður og hefur sett margt baráttumálið á oddinn. Mikið færi honum fram ef hann hugsaði málflutning sinn betur og vandaði til verka.
Oddsteinn Friðriksson sagði eitt sinn um mann nokkurn sem fékkst við að yrkja sálma að héldi hann þannig áfram yrði hann sjálfsagt liðtækur um nírætt. Hver veit nema Ólafur nái þeim árangri um áttrætt ef hann breytir um stíl.

Bloggfærslur 29. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband