Eru konur heiðarlegri bankastjórar en karlmenn?

Í nýlegri könnun kemur fram að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar telur að margt hefði betur farið í bankakerfinu hefðu fleiri konur verið á meðal stjórnenda bankanna.
Nýlega voru tvær konur ráðnar í stöður bankastjóra. Komið hefur í ljós að önnur þeirra ætlaði sér að kaupa ríflegan hlut í bankanum sem var fyrirrennari þess er hún stýrir nú og að það mál sé enn ekki útkljáð. Er heiðarlegt af henni að setjast í stól bankastjórans þegar svo stendur á?

Litlu bankarnir á hálum ís

Fjárfestir nokkur, sem á hlutabréf og sparifé víða, fullyrðir að Landsbankinn, Glitnir og jafnvel Kaupþing hafi nýtt sér minni fjárfestingarfyrirtækin eins og Icebank, VBS fjárfestingarbanka o.fl. til þess að ná út meira fé hjá Seðlabankanum en lög leyfðu. Nýttu þeir sér glufu í lögunum sem verður ekki útskýrð hér.

Athygli vekur að á heimasíðu VBS er frétt um endurhverf viðskipti bankans. Við lestur fréttarinnar kemur í ljós að mikil óvissa er um stöðu fyrirtækisins vegna þessara viðskipta og fer það allt eftir viðbrögðum nýju ríkisbankanna.

Á morgun er boðaður hluthafafundur í VBS og þar verður kjörin ný stjórn. Sennilega merkir þetta mikil aðsteðjandi vandræði því að beðið er um framboð til stjórnar.


Hver verður staða Morgunblaðsins?

Nú hefur komið í ljós að ekki er lengur áhugi á því hjá Jóni Ásgeiri og félögum að gerast hluthafar í Árvakri. Þó er enn rætt um hagræðingu samlegðaráhrifa.

Hefur Jón Ásgeir leikið á Morgunblaðið? Telur hann, þegar 24 stundir hafa lagt upp laupana, að nú sé lag að ná Fréttablaðinu á strik?

Athygli vakti að á Morgunvaktinni á Rás eitt í morgun virtust menn ræða úreltar upplýsingar um stöðuna sem komin er upp vegna kaupa Rauðsólar á fjölmiðlun 365-samsteypunnar. Það er undarlegt í ljósi þess að Anna Kristín Jónsdóttir er glöggur fréttamaður og viðmælendur hennar gjörkunnugir aðstæðum. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu.


Dagar foringjanna í stjórnmálum senn taldir

Þegar Morgunblaðinu er flett í morgun birtist reiði almennings sem greinilega er farin að fá útrás.

Þeim fjölgar nú stöðugt sem álíta að kjósa beri til alþingis svo fljótt sem auðið verður. Þá hljóta að verða mikil umskipti á þeim sem hasla sér völl á sviði stjórnmálanna. Foringjar flokkanna hljóta að víkja, þau Geir, Ingibjörg Sólrún, Steingrímur, Guðni og Guðjón Arnar.

Ætli Samfylkingin ekki að láta Sjálfstæðisflokkinn draga sig niður í svaðið verða ráðherrar flokksins að ákveða hvort þeir ætli að sleppa báðum höndum af stjórnarstýrinu í stað annarrar handarinnar.

Nokkrir ráðherrar hafa þegar dæmt sig úr leik með því að tala gegn betri vitund um ástand og stöðu íslensku bankanna fyrr á þessu ári. Þeir eru því sekari um meiri blekkingar gagnvart íslenskum almenningi og heiminum öllum en flestir aðrir. Er slíku fólki treystandi fyrir framhaldinu?

Kannski eru þeir jafnmikið eða meira vandamál en Davíð Oddsson.


Rafmagnsleysi í norðurhlutanum

Í gærkvöld sprakk pera fremst í ganginum hjá okkur. Þegar átti að skipta um peru reyndist nær ókleift að ná ljósakúplinum niður. fóru leikar svo að eitthvað gerðist og fór allt rafmagnið af norðurhluta íbúðarinnar. Þar með varð svefnherbergið rafmagnslaust, baðið, tölvuhornið og annað sem þeim megin er. Nú er beðið eftir rafvirkja til þess að kippa þessu í liðinn.

Bloggfærslur 3. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband