DV dæmt úr leik

Það er háskalegt þegar ritstjórar og blaðamenn láta stjórnast af hótunum. Þar með rýrnar trúverðugleiki þeirra.

Hætt er við að Reynir Traustason beri varla sitt barr eftir atburði kvöldsins. Haldi hann hlífiskildi yfir sjálfum sér með því að halda skildi yfir höfði þess er hótaði honumer hann orðinn um leið ósamkvæmur sjálfum sér, verður að taka aftur orð sín um spillingaröfl þessa lands og getur ekki tekist á við uppbyggingu nýs og betra Íslands. Hann er þá sjálfur orðinn holdgervingur þeirrar spillingar sem hann hefur eignað öðrum.

Hugsanlega er skýringin sú að hann eigi ekki hljóðrit af samtalnu við ógnvald sinn.


Textavarpið aðgengilegt hjá Vodafone um ljósleiðara

Vegna færslu um textavarp Vodafone hefur eftirfarandi athugasemd verið skrifuð í gestabók síðunnar:

"Textavarpið komið inn - líka fyrir norrænu stöðvarnar Sæll Arnþór Í ljósi þess að tímamörkin sem þú settir fyrir athugasemdir vegna blogg-færslu um Textavarp á sjónvarpsþjónstu gegnum ljósleiðara og ADSL bregð éég á það ráð skrifa þetta hér inn. Þú færir þetta kannski á réttan stað, ef þú getur. En alla vega, eftir að hafa fengið ábendingar um bloggfærslu Kristins Jóns var málið kannað, enda á Textavarpið að vera aðgengilegt þeim sem velja að fá sjónvarpsþjónustu um ljósleiðara og ADSL. Við þá athugunum kom í ljós bilun, sem olli því að útsendingar Textavarpsins á kerfinu lágu niðri. Það hefur nú verið lagfært og til viðbótar hefur textavarp stærstu sjónvarpsstöðvanna á Norðurlöndum einnig verið sett inn. Við skiljum vel mikilvægi þess að Textavarpið virki eins og fólk er vant. Að sama skapi vonum við, að notendur tæknilegum vandamálum skilning jafnvel þótt slíku fylgi óþægindi, sem við biðjumst að sjálfsögðu velvirðingar á. Kær kveðja, Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Vodafone"

Svona eiga sýslumenn að vera, eins og Skugga-Sveinn mælti hér um árið.


Athyglisverður leiðari DV

Ég hvet lesendur til að kynna sér leiðara DV sem kallast "Ísland á hvolfi."
Þar lýsir Jón Trausti Reynisson því hvernig hlutirnir snúast við gagnvart þeim sem minnst bera úr bítum á meðan aðrir bera meira úr bítum en nokkru sinni fyrr.

Sókn er besta vörnin

Flest bendir nú til að Rio Tinto ætli að hætta við að stækka álverið í Straumsvík og að ekkert verði úr álframkvæmdum við Húsavík. Þá er um að gera að leita á önnur mið og það hefðu menn átt að gera fyrir lifandi löngu.

Bloggfærslur 15. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband