Ríkisútvarpið fær að vera í friði um sinn

Óðagotið er með ólíkindum á Alþingi og ætla mætti að stjórnarmeirihlutinn léti stundum stjornast af annarlegum hvötum.

Nú hefur komið í ljós að áformuð lög um að svipta Ríkissjónvarpið stöðu sinniá auglýsingamarkaði voru vanhugsuð. Getur þá ekki einnig verið að uppsagnir starfsmanna RÚV hafi verið vanhugsaðar? Er hægt að snúa við og hverfa frá áætluðum samdrætti?

Stöndum vörð um Ríkisútvarpið og eflum það. Það er gagnrýnasti og sjálfstæðasti fjölmiðill þjóðarinnar! Verjum það gegn vanhugsuðu óðagoti óvina þess!


Vilji almennings

Geir Haarde greindi frá því í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hefja þyrfti undirbúning fjárlagaársins 2010 þegar eftir jól. Velti hann fyrir sér hvernig ætti að styrkja stöðu ríkissjóðs og nefndi tvennt: hærri skatta eða samdrátt í ríkisútgjöldum.

Fyrir nokkrum árum tjáði þjóðin skoðun sína á þessu máli. Þá kom í ljós í skoðanakönnun að yfirgnæfandi meirihluti vildi greiða hærri skatta til þess að hægt yrði að standa vörð um velferðarkerfið.

Vonandi ber Sjálfstæðisflokkurinn gæfu til þess að bæta fyrir þau skemmdar- eða hryðjuverk sem hann hefur haft forystu um að fremja á íslensku skatta- og velferðarkerfi. Jafnari skipting og velferð eru hugðarefni meginþorra þjóðarinnar nú sem fyrr.


Bloggfærslur 19. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband