Glöggt dæmi um græðgi Frjálsa fjárfestingabankans - eins dauði annars brauð

Fyrir rúmu ári var hafist handa við að rífa húsið á horni Nesvegar og Skerjabrautar sem hýsti áður Prjónastofuna Iðunni, fallegt hús sem reist var á 7. áratugnum. Húsið ásamt næstu lóð´hafði verið keypt fyrir 270 milljónir og þar skyldi reisa fjölbýlishús ætlað 50 ára og eldri. Upphaflegar hugmyndir eigendanna gerðu ráð fyrir 35 íbúðum en þeim var hafnað.

Tilboð hafði borist í uppsteypu hússins og hljóðaði það upp á 700 millj. kr. Lóð og hús kostuðu þannig um 970 millj. kr. og þá var sjálfsagt eftir að ganga frá húsnæðinu svo að það yrði íbúðarhæft.

Þegar Iðunnarhúsið var rifið var þegar farið að bóla á skorti á eftirspurn eftir nýju húsnæði enda hefur gryfjan staðið auð og ófrágengin. Í vestanáttum hefur mold og sandi rignt yfir næstu blokk.

Nú hefur verið hafist handa við að fylla gryfjuna upp og næsta vor verður sáð í hana. Lítur þannig út fyrir að við hjónin njótum óhefts útsýnis úr eldhúsglugganum og svo er um fleiri íbúa Tjarnarbóls 14.

Vissulega erum við Frjálsa fjárfestingabankanum, sem á þessa hornlóð, þakklát fyrir að útvega okkur þetta fagra útsýni en þykir það helsti dýr gjöf - gjöf því að spáð er að ekki verði byggt þarna á næstu árum.

Vonandi hafa þeir, sem seldu Iðunnarhúsið og lóðirnar, getað fjárfest í öðru en hlutabréfum og peningamarkaðssjóðum.


Tvískinnungsháttur Samfylkingarinnar

Það vekur athygli að í ályktun Samfylkingarfélagsins á Akranesi er krafist stjórnarslita fari Sjálfstæðisflokkurinn ekki að kröfu flokksins um að samþykkja aðild að Evrópusambandinu. Um leið vill félagið tryggja eign þjóðarinnar á auðlindum landsins í stjórnarskrá. Sumir myndu nú halda að með því að ganga inn í ESB afsöluðu Íslendingar rétti sínum til nýtingar auðlindanna.

Ég tek heils hugar undir sjónarmið þeirra sem varað hafa við þeirri umræðu sem fer nú fram um nauðsyn þess að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu. Til þess að það sé hægt verður að kanna ítarlega hvaða afleiðingar það hefði í för með sér og efna til gagnrýninnar umræðu sem mótast ekki af fyrirfram gefnum skoðunum.

Styrmir Gunnarsson hitti naglann á höfuðið á fundi Heimssýnar á mánudaginn var þegar hann dró upp í fáum en skýrum dráttum þau atriði sem hugleiða þarf og Sigurður Líndal hefur varað við þessari einhliða umræðu á þeim umbrotatímum sem við erum nú á. Samlíking Illuga Gunnarssonar við timburmenn og verkjapillur var og skondin..

Það er þekkt að einhliða áróður snúist fyrr eða síðar gegn þeim sem hann stunda. Með því að klifa í sífellu á aðild að ESB er hætt við að Samfylkingarsinar hrindi ýmsum í fang Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins. Þætti þá sumum betur heima setið en af stað farið og svo gæti farið að fylgi Samfylkingarinnar minnkaði.


mbl.is Myndi jafngilda stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband