Skrýlsháttur og tvískinnungur

Það var einkum tvennt sem mér hugnaðist ekki við nýju tóbaksvarnalögin sem tóku gildi í fyrra.

Hið fyrra var undanþága Alþingis og Leifsstöðvar. Hvernig geta alþingismenn verið svo skyni skroppnir að halda að hið sama verði ekki að ganga yfir þá og aðra í þessum efnum?

Hitt var að mér þótti skorta nokkuð á viðurlög við brotum á lögunum.

Ýmsir frjálshyggjupostular halda því fram að ekki eigi að setja refsiákvæði í lög, engan eigi að beita þvingunum. Það hefur þó margsannast að Íslendingar skilja ekkert annað en refsivönd laga og réttar. Þetta sanna m.a. umferðarlögin á ýmsum sviðum.

Þrátt fyrir tvískinnung Alþingis eiga kráareigendur ekki að ganga fram eins og hver annar götuskrýll og taka lögin í sínar hendur. Réttur götunnar verður aldrei æðri lögum hvers lands.


Bloggfærslur 4. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband