Hefur Síminn beðið ósigur?

Að undanförnu hefur verið greint frá því að vodafone hafi sett upp langdræga GSM-senda víða um land. Einu sinni var sagt að tæknilegar ástæður lægju til þess að langdrægni GSM-kerfisins væri takmörkuð við 25-30 km en nú hefur sýnt sig að nýir sendar, sem eru víst kínverskir, draga allt að 100 km.

Ég hafði samband við Vodafone um daginn og spurði hvort gerðir yrðu reikisamningar við Símann og fleiri fjarskiptafyrirtæki til þess að tryggja afnot viðskiptavina þeirra. Ekki var mönnum kunnugt um það þar á bæ.

Síminn hugðist koma upp öðru farsímakerfi á þeirri tíðni sem NMT-kerfið hefur notað til þessa. Skyldu þau áform nú ekki vera í uppnámi eftir að langdrægu GSM-sendarnir komu til sögunnar?

Getur verið að brátt verði Vodafone að sæta ýmsum úrskurðum vegna yfirburða sinna á langdrægnismarkaðinum?


Eru Síonistar hryðjuverkamenn?

Ævar Kjartansson sér um þáttinn lárétt og lóðrétt í ríkisútvarpinu. Er hann á dagskrá á sunnudagsmorgnum og endurtekinn kvöldið eftir.

Síðast ræddi hann við Jón Orm Halldórsson um sitthvað sem snertir tengsl trúarbragða og stjórnmmála. Þeir ræddu m.a. átökin milli kristinna manna og múslima.

Jón Ormur hélt því fram að meginástæðu þeirra trúarátaka sem háð eru nú um allan heim megi rekja til hegðunar Ísraelsmanna undanfarna áratugi, stuðnings vesturveldanna við þá og utanríkisstefnu Bandaríkjamanna.

Hann vakti athygli á að viðbrögð bandarískra stjórnvalda vegna árásanna 11. september 2001 hefðu verið eins og eftir pöntun hryðjuverkamanna.

Ýmislegt bendir til þess að hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. sept fyrir hálfu sjöunda ári megi jafnvel rekja til samvinnu leyniþjónustu Bandaríkjanna og Ísraels án þess að farið sé nánar út í það hér. En eitt er víst. Það ráða víðar öfgahópar ríkjum en í löndum múslima. Í Ísrael ráða öfgahópar þröngsýnna Gyðinga mestu og allir vita hvern hlut trúarofstæki á í stjórn Bandaríkjanna.

Stórveldi hafa jafnan beitt ýmsum meðulum til þess að hrinda áformum sínum í framkvæmd. Bandaríkin eru þar engin undantekning. Ég spái því að okkar kynslóð verði vitni að einhverjum mestu afhjúpunum seinni tíma þegar ljóst verður hvaða hlut bandarísk stjórnvöld áttu í þeirri þróun mála sem leiddi til innrásarinnar í Írak og Afghanistan og þeirrar örbirgðar sem Palestínumenn eru nú ofurseldir og hafa verið undanfarna áratugi.

Þegar maður tekur mús í lófa sér bítur hún svo að svíður undan. Sárið er lengi að gróa.


Bloggfærslur 11. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband