Vorið, afmælli Erlings Viggóssonar og afmælissöngurinn AUSTRIÐ ER RAUTT

Í þessum hljóðpistli segir af vorinu á Seltjarnarnesi, fjöruferð, afmæli Erlings Viggóssonar, kommageri og framsókn, afmælissöng allra tíma o.fl.

vegna fyrirspurnar um fyrri pistil skal tekið fram að hann er hljóðritaður með AKG D230 og Nagra Ares BB+.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Stórþorskadrápið

Það eru athyglisverðar niðurstöðurnar um stórfiskadrápið sem fjallað er um í frétt Morgunblaðsins. Ýmsir hafa orðið til þess á undanförnum árum að gagnrýna skefjalaust stórþorskadráp hér á landi og má t.d. nefna Jón Ármann Héðinsson, fyrrum þingmann og útgerðarmann, en hann reit nokkrar greinar í Morgunblaðið um þessi mál á síðasta áratug. Benti hann á að þessar ofsóknir á hendur rígaþorskinum gætu haft eðlislægar breytingar á þorskstofninn.

Ýmsir halda því fram að Jón og félagar hafi haft rétt að mæla enda sé stórþorskurinn að mestu horfinn af sjónarsviðinu. Hvað ætli íslenskir fiskifræðingar hafi um málið að segja?


mbl.is Rangt að ofvernda smáfiskinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband