Enn um aðgengi að Jövu

Hvað sem um Bill og Microsoft má segja hefur hann stuðlað að því að gera tölvur aðgengilegar, að vísu eftir að allt horfði til málaferla bandarísku blindrasamtakanna við Microsoft.

Mér hljóp kapp í kinn vegna athugasemdar Drengs og réðst aftur á Jövu. Nú er Javan komin inn og sögð vera í lagi.

Þá sótti ég Windows Access Bridge og þar er eitthvað skrýtið og óaðgengilegt. Ég gafst upp núna áðan og ætla að fá einhvern snilling skyldan mér til þess að skoða þetta.

Ég hef oft velt því fyrir mér hvfers vegna grunnatriði eins og uppsetning hugbúnaðar sé ekki aðgengileg öllum. Í Bandaríkjunum, þar sem lög gilda um upplýsingaaðgengi fer þó margt á annan veg. Til að mynda eru Brómberjasímarnir (Blaccberry) gersamlega ónothæfir blindu fólki. Með því að leika sér að því að brjóta viðurkennda staðla og finna upp ný tól leggja framleiðendur um leið hindranir í götu fólks sem hefur ekkert til saka unnið en að aðhyllast það sem er aðgengilegt á markaðinum og selst.

Eitthvað segðu bílstjórar ef bílum væru ætlaðar gangstéttir og gangandi fólki og hjólandi breiðgötur borgarinnar.


Svöl 12 stig

Við Elín mín brugðum okkur út í Viðey í dag ásamt Hring og Hlyni, vini hans. Hlynur hafði aldrei komið þangað áður en Hringur nokkrum sinnum. Ég fékk Hring til þess að spjalla dálítið við mig inn á hljóðrita, en við áttum saman spjall fyrir 10 árum þegar hann var á 4. ári. Ætla að nota það við tækifæri til þess að gefa fólki dæmi um þá breytingu sem verður á þessum 10 árum. Nú er hann orðinn ótrúlega djúpraddaður og á stundum djúpvitur.

Aðgengi að Open Office forritunum

Um daginn sendi ég fyrirspurn til Dolphin Computer Access um aðgengi blindra og sjónskertra að Open Office forritunum. Ekki stóð á svari. Þessi forrit eru þróuð til þess að nýtast með JAVA og þess vegna hefur þurft að gera sérstakar ráðstafanir til þess að þau verði aðgengileg fyrir Supernova skjálesarann.

Með bréfinu fylgdu tvær skrár sem þarf að tengja við Supernova og hef ég þegar gert það. Einnig var með tjáð hvað gera þurfi til þess að hala niður JAVA-skrám sem þarf að virkja til þess að allt verki nú eins og til er ætlast.< Þá var ég beðinn að prófa hugbúnaðinn á næstu vikum og senda skýrslu til framleiðenda.P>

Það vafðist hins vegar fyrir mér að hala niður skránum og þarf ég mér seigari tölvumann til aðstoðar. Huga að því um eða eftir helgi, en þetta lofar góðu.


Bloggfærslur 28. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband