Hið rétta eðli Bush-stjórnarinnar

Í morgun greindu fjölmiðlar frá því að Bandaríkjamenn krefðust nú 50 herstöðva í Írak og yfirráða yfir lofthelgi landsins. Stendur þessi krafa eitthvað í írökskum stjórnvöldum en Bandaríkjamenn þrýsta á að samningar verði undirritaðir eigi síðar en í næsta mánuði.

Þetta er eins og bergmál hins liðna hér á landi. Árið 1946 kröfðust Bandaríkjamenn herstöðva á Íslandi til 99 ára. Ýmsir stjórnmálamenn, þar á meðal Bjarni Benediktsson, mótmæltu harðlega og vitnuðu til yfirlýsingar landsins um ævarandi hlutleysi. Að vísu skiptu sumira þeirra um skoðun eftir að kalda stríðið hófst.

Bandaríkjaher kom síðan hingað formlega árið 1951 og var hér á meðan bandarísk stjórnvöld töldu sig þurfa á því að halda, en ekki á meðan sumir Íslendingar töldu sig þurfa á erlendum her að halda.

Niðurstaðan er þessi: Bandaríkjamenn eru heimsvaldasinnar.

Ég spurði eitt sinn nemendur mína að því hver væri munurinn á heimsvaldastefnu nútímans og 19. aldar. Einn þeirra svaraði því til að heimsvaldasinnar nútímans gerðu sér ekki grein fyrir því að þeir væru heimsvaldasinnar. En bandarísk stjórnvöld vita svo sannarlega hvað þau vilja og það hefur nú komið berlega í ljós gagnvart Írökum.


Bloggfærslur 5. júní 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband