Fyrirmyndar heimasíða

Heimasíðu Seltjarnarness hefur nýlega verið breytt.

Heimasíðan hefur löngum verið ein aðgengilegasta síða sveitarfélags á Íslandi. En lengi getur gott batnað. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á síðunni eru mjög til bóta og auðvelda alla leit.

Eftir skyndiskoðun er full ástæða til að óska Seltirningum til hamingju með þessa nýju síðu.

Ég hef áður á þessari síðu fjallað um ljósleiðarann sem lagður var um nesið og á að styrkja rafræna stjórnsýslu. Nú vantar ekkert annað en hann verði gerður svo úr garði að allir, þar á meðal undirritaður, geti notfært sér þá þjónustu sem verður senn gerð gagnvirk.

Reykjavík gæti margt lært af Seltirningum, en margt á síðu borgarinnar er afleitt þótt sumt sé harla gott.


Heimasíða menningarnætur

Hver skyldi hafa hannað heimasíðu menningarnætur?

Hún er nú einhver óaðgengilegasta síða sem ég hef lengi skyggnst inn á. Ætti skilið að fá skammarverðlaun allra tíma á Íslandi.

Það virðist útilokað að ferðast um hana með lyklaborðinu og allar aðgengiskröfur þverbrotnar.

Ég vona að höfundurinn gefi sig fram og útskýri hvað hann meinti með þessari hönnun.

Mig undrar að engin samtök fatlaðra hafi látið í sér heyra. Ætli ég verði ekki bráðum að stofna nýtt blindrafélag.


Íslenskur sigur í Beijing

Það var á stundum erfitt að einbeita sér að skriftum í dag. Andrúmsloftið var þrungið spennu og gleði og öðru hverju bárust undrunar- og gleðihrópu um Morgunblaðsbygginguna.

Mér þótti vænt um hvað menn gættu tungu sinnar og töluðu hvorki um að einhverjir lægju í valnum né notuðu niðrandi orðalag um andstæðingana. Í því felst hinn sanni Ólympíu- og íþróttaandi.


Bloggfærslur 22. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband