Ánægjulegar hádegisfréttir og atburðir morgunsins

Það var að mestu leyti gaman að hlusta á hádegisfréttirnar. Eyþór Þrastarson varð 8. í lokasundinu í 400 m skriðsundi austur í Beijing og á Landsspítalanum hafa fæðst 10-11 börn.

Í gamla daga var jafnan sagt frá síldveiðum í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Síðan kom þátturinn Auðlindin en nú er varla minnst á fiskveiðar.

Barnsfæðingar eru skemmtilegar fréttir. Ég legg því til að þær verði fastur liður hjá ríkisútvarpinu.

Í morgun fór ég að láta skrá mig atvinnulausan. Var þar slangur af fólki. Einhver hafði dreypt á kaupstaðardropum til þess að örva kjarkinn og lagði ilminn af íslensku brennivíni um allan salinn. Dapurlegt.

Ung kona, sem mér var vísað til, spurði mig í þaula um hitt og þetta. Benti hún mér á að skrá mig í upplýsingagrunn Vinnumálastofnunar og sagði mér hvernig mér bæri að standa að því. Þegar heim kom fann ég ekki krækjuna á heimasíðu Vinnumálastofnunar sem vísar á gagnagrunninn (skráningareyðublað held ég að hann heiti) og velti því fyrir mér hvort verið geti að krækjan sé mynd án alt-texta. Hef ég lagt fram fyrirspurn um þetta mál eftir að hafa leitað af mér allan grun.

Í janúar 2007 skrifaði ég Gissuri Péturssyni, forstjóra stofnunarinnar, og benti honum á að eitthvað þyrfti að gera til að bæta aðgengið. Mér sýnist næsta lítið hafa gerst síðan. Talsvert margar krækjur eru á síðunni sem skjálesarinn les eingöngu sem "link".

Ég hef áðursagt á þessum síðum að óaðgengilegt efni sé í raun mesta hindrun fólks í nútíma samfélagi til þess að njóta jafnréttis. Í raun fela óaðgengilegar heimasíður í sér mismunun. Sú mismunun er engu skárri en mismunun kynjanna.


Eyþór í úrslit

eyþór Þrastarson, sem keppir í flokki blindra á Ólympíuleikunum í Beijing, komst í úrslit í morgun og keppir aftur fyrir hádegi. Áfram Eyþór!

Bloggfærslur 11. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband