18. september 1975

Enn held ég áfram að gramsa í gömlum segulböndum og í dag rakst ég á spólu með hljóðriti frá 18. og 19. sept. 1975. Þá vorum við Páll bróðir,Magnús Karel Hannesson og Lárus Grétar Ólafsson á ferð um Kína og fyrir 33 árum sóttum við heim hljóðfæraverksmiðju í Peking. Daginn eftir fórum við að skoða kommúnu þar sem ræktuð voru epli. Leist okkur öllum á 18 ára gamla stúlku sem hafði yfirumsjón með eplaræktinni.

Páll skrifaði konu sinni löng bréf frá þessari ferð sem stóð í um 6 vikur með lestarferðinni á milli Kaupmannahafnar og Peking. Eyddum við 15 nóttum í lest og vorum 23 daga í Kína. Bréf Páls voru skrifuð á meðan atburðirnir gerðust og skipta síðurnar hundruðum. Eru þau áreiðanlega merkisheimild um þjóðfélag það sem ríkti við lok menningarbyltingarinnar.


Fyrsta atvinnuviðtalið

The American Foundation for the Blind sem vinnur að hagsmunamálum blindra og sjónskertra í Bandaríkjunum, hefur nýlega sent frá sér athyglisvert myndband um fyrsta atvinnuviðtalið:

http://www.afb.org/enews.asp

Þar er tekið á ýmsu sem skiptir máli í atvinnuviðtölum.


Bloggfærslur 17. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband