Dagar ríkisstjórnarinnar taldir

Samfylkingarfélagið í Reykjavík samþykkti að slíta verði stjórnarsamstarfinu og efna til kosninga.. Þar með eru dagar stjórnarinnar taldir því að Rangæingar eru sama sinnis.

Ríkisstjórnin í andarslitrunum

Þingfundi hefur verið frestað. Sagt er að nú semji forystumenn ríkisstjórnarinnar um framhaldið og búist sé við tíðindum jafnvel síðar í dag eða á morgun. Jafnvel hefur heyrst talað um þingrof.

Gjáin milli þjóðar og ríkisstjórnar

Þegar rýnt er í orsakir mótmælanna á Austurvelli í gær stendur einkum tvennt upp úr: ábyrgðarleysi ríkisstjórnarinnar og reiði í garð þeirra sem komu Íslendingum á kaldan klakann.

Fjármálaráðherra er rúinn öllu trausti. Ber þar hæst að hann svaf á fjármálavaktinni og lét fljóta sofandi að feigðarósi. Þá bætir margumtöluð embættisveiting á Norðausturlandi ekki úr skák.

Viðskiptaráðherra svaf einnig á vaktinni. Hið sama á við um ýmsa ráðherra aðra sem tóku jafnvel þátt í blekkingarleiknum.

Hver og einn um anna þveran og nú síðast iðnaðarráðherra hefur lýst því yfir að hann axli ábyrgð. En enginn hefur axlað ábyrgðina og sagt af sér.

Þá er seðlabankastjóri orðinn holdgervingur spillingarinnar í augum margra hvort sem það er á rökum reist eður ei. Flestir telja að hann sitji enn í embætti vegna veiklyndis forystumanna ríkisstjórnarinnar. Allt stuðlar þetta að aukinni sundrungu og andstyggð almennings.

Um þessar mundir er að verða deginum ljósara hvað hafst var að í bönkunum skömmu fyrir bankahrunið og sannar sögur um græðgi þeirra og ráðsmennsku í garð almennings allt til hinstu stundar reynast á rökum reistar. Enginn hefur verið sóttur til saka. Þótt því sé haldið fram að menn hafi ekki hagnast á þeirri fjármálaleikfimi sem iðkuð var dregur það ekki úr siðleysinu og glæpnum sem framinn var.

Heyrst hafa þær raddir að flest fari úr böndunum innan skamms ef ríkisstjórn og þing skyna ekki að Reykjavík brennur brátt eins og róm forðum. Hvorki piparúði né aðgerðarleysi og þumbaraháttur stjórnvalda geta komið í veg fyrir það.


Bloggfærslur 21. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband