Apple stórbætir aðgengi að framleiðslu fyrirtækisins

Apple Nano tónhlaðan er nú að mestu orðin aðgengileg blindu og sjóndöpru fólki. Þetta kemur fram í veftímariti Bandarísku blindrasamtakanna.

Þegar tónhlaðan er tengd við tölvu, t.d. pc-vél, geta menn valið þær raddir sem fylgja Windows-stýrikerfinu. Ekki er vitað til þess að íslenska sé enn í boði.

Um leið og tónlist er halað niður á Nanóinn fylgja með textaskrár með lýsingum á því sem halað hefur veriðniður. Það er því ekki um eiginlegan skjálesara að ræða eins og í farsímum. Er þetta gert til þess að nýta betur minni Nanósins.

Eftir að talið hefur verið sett upp eru flestar valmyndir aðgengilegar. Leikir, klukka, dagatal o.fl. eru þó ekki þar á meðal.

Þá er skjárinn á Nano4 mun betri þeim sem eru sjóndaprir. Hægt er að velja mun meiri litaskerpu en áður.

Lyklaborð Nanósins er eins konar hjól sem notað er til þess að stilla styrkinn og fara á milli valmynda. Flestum gengur vel að átta sig á virkni þess á skömmum tíma.

Apple hefur einnig stórbætt aðgengið að Itunes-forritinu. Á það einkum við um notendur Apple-tölva. Enn vantar talsvert á að pc-umhverfið sé orðið aðgengilegt en unnið er að lausnum.

Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér nánar efni um Apple Nano 4 er bent á vefsíðuna

http://www.afb.org/aw/main.asp


Stórtíðindi

Æxli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er góðkynja, en hún þarf hvíld.

Nú hefur Geir Haarde greinst með illkynja æxli í vélinda. Það er þyngra en tárum taki.

Ekki verður hér velt vöngum yfir áhrifum veikinda þessara forystumanna. Um leið og glaðst er yfir væntanlegum bata Ingibjargar Sólrúnar eru Geir Haarde fluttar kveðjur og einlægar óskir um bata.


Hugmyndir um nýtt framsóknarmálgagn

Í dag barst okkur, nokkrum gömlum bekkjarbræðrum úr MR, tölvupóstur frá Magnúsi Karel Hannessyni, fyrrum borgarstjóra og einvaldi á Eyrarbakka. Voru þar á ferðinni nokkur tölublöð Dreifbýlistíðinda sem hann gaf út fyrir tæpum 40 árum, en þau voru eitt fjölmargra blaða sem gefin voru út í bekknum.

Þessi sending rifjar upp ýmislegt sem gekk á og gerðist í B-bekk MR á þessum árum. Sumir hafa orðið svo glaðir að þeir telja að nauðsynlegt sé að endurvekja Dreifbýlistíðindi á vefnum og hafa meira að segja heyrst þær raddir að blaðið verði notað til að styrkja Framsóknarflokkinn:.


Bloggfærslur 23. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband