Ásættanlegur viðræðugrundvöllur

Ýmsum býður í grun að ein af ástæðum þess að rússar vilja ekki veita Íslendingum lán sé vantraust þeirra á íslenskri hagstjórn og skyldi þá engan undra.

tillögur Sjálfstæðisflokksins um ráðstafanir í ríkisfjármálum og leiðir til hagræðingar eru ásættanlegur viðræðugrundvöllur. Nú þegar sér vonandi til lands í Icesave-deilunni ættu að geta tekist sættir um að ræða þá leið sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að farin verði. Í fljótu bragði virðist sem ýmislegt sé bitastætt í tillögunum. Þær höggva m.a. á krónubréfavandann svo fremi sem eigendur krónubréfanna samþykkja tilboðið. Það virðist illlskárra en að veðja áfram á handónýtan gjaldmiðil.

Þetta er skárri nálgun vandans en að reyna að koma Framsóknarflokknum úr þeirri snöru sem hann hefur brugðið um háls sér. Allt látæði frámsóknarmanna virðist benda til að þeir skilji hvorki né skynji þann vanda sem Icesave-málið hefur komið Íslendingum í. Sem dæmi má nefna að ekki fæst lán til að fjármagna Danice-strenginn og er það einungis forsmekkurinn af því sem gerist haldi stjórnarandstaðan áfram að draga lappirnar.

Vonandi fara nú stjórnarsinnar og stjórnarandstaðan að tala saman með vitrænum hætti. Nokkuð hefur skort á slíkt að undanförnu og á meðan brennur Ísland.


mbl.is Rússar hafna láni til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gönuhlaup framsóknanrmanna og óvinir launafólks

Guðmundur Gunnarsson fer mikinn á bloggi sínu á Eyjunni, http://gudmundur.eyjan.is. Þar lýsir hann þeirri skoðun að þeir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson séu helstu óvinir launafólks um þessar mundir. Málum sé nú þannig komið að framsóknarmenn þurfi á hjálp að halda til þess að skera sig niður úr þeirri snöru sem þeir hafa sjálfir brugðið um háls sér. Svo virðist undirrituðum sem ritstjóri Morgunblaðsins hafi nú þegar brugðist við kallinu, samanber leiðara blaðsins í gær.

Fleiri hafa fjallað um Noregsferð Framsóknar. Þorbjörn Broddason, prófessor og fræðimaður í fjölmiðlun, fjallaði um Noregsferðina í þættinum Vítt og breitt í morgun og vakti m.a. athygli á því hvernig fjölmiðlar hefðu kokgleypt þá frétt framsóknarmanna að Íslendingum gæti staðið til boða lán upp á allt að 100 milljjörðum norskra króna. "Þetta var sú upphæð sem þeir (framsóknarmennirnir) nefndu sjálfir", sagði Þorbjörn.

Þegar þeir Sigmundur Davíð og Höskuldur hafa reynt að verja gerðir sínar vegna Noregsfararinnar segjast þeir eingöngu hafa rættum lánalínur og aldrei nefnt þessa háu upphæð. En það var fyrst og fremst þessi tala sem fjölmiðlar ginu við.

Þorbjörn spurði í morgun í umboði hverra framsóknarmennirnir hefðu farið til Noregs annarra en sjálfra sín.


Bloggfærslur 14. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband