Atvinnuauglýsingar á mbl.is aðgengilegar að nýju

Í dag gluggaði ég í atvinnuauglýsingar á mbl.is, en eins og kom fram á þessum síðum fyrir nokkru voru þær orðnar óaðgengilegar þeim sem nýta skjálesara. Var því haft samband við Morgunblaðið og á þetta bent.

Ég hef heyrt að Blindrafélagið hafi ráðið Birki Rúnar Gunnarsson sem aðgengisfulltrúa og er það vel. Hverjum sem þessi lagfæring er að þakka er full ástæða til að þakka mbl.is fyrir skjót viðbrögð.

Mbl.is er fjölsóttasti vefmiðill landsins sem kunnugt er. Hann er jafnframt sá langaðgengilegasti. Þótt ýmislegt megi bæta á vefnum komast aðrir vefmiðlar samt ekki þangað með tærnar sem hann hefur hælana.


Hittir gamli seðlabankastjórinn naglann á höfuðið?

Hætt er við að flestir telji að fyrrum seðlabankastjóri hafi samið Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í dag. Það er beinskeytt árás á "spunameistara Samfylkingarinnar" og um leið kennsla í því hvað teljist eignir og í hverju sé hægt að taka veð.

Þegar upplýsingar um stöðu íslensku bankanna láku til almennings um miðjan júlí árið 2008 tók heimildamaður undirritaðs sérstaklega fram að veðlánasöfn (bein tilvitnun) íslensku bankanna væru talin óhæf því að á bak við þau væru nær engar eignir og þar sem þær væru fyrir hendi færi verðið lækkandi.

Það er rétt hjá gamla seðlabankastjóranum að sumir eiga eingöngu skuldir og yfirleitt teljast þær ekki arðbærar. En það virðast íslenskir bankamenn trauðla hafa vitað. Annars hefði væntanlega ekki farið sem fór.


Kolbrún gefur á kjaftinn

Morgunblaðið birtir í dag grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur um íslenska stjórnmálamenn. Ræðir hún um óheilindi og sandkassaleik þeirra og nefnir þar einkum Framsóknar- og Sjálfstæðismenn auk þeirra sem áður tilheyrðu Borgarahreyfingunni. Telur hún Steingrím Sigfússon og Jóhönnu Sigurðardóttur á meðal þeirra sem vinna af heilindum.

Ögmundur Jónasson og félagar hans í stjórnarandstöðunni í Vinstri grænum fá vel útilátið kjaftshögg:

"Og þá er eftir að telja upp þann stjórnarandstöðuflokk sem er enn verri en þeir áðurnefndu og það er andófshreyfingin í Vinstri- grænum sem kennir sig óspart við samvisku sína. Þetta afl innan Vinstri-grænna er beinlínis að vinna gegn lausn brýnna mála og þar með gegn þjóðarhag.

Á tímum þegar þjóðin gerir kröfu til þess að stjórnmálamenn vinni saman, komist að samkomulagi og leysi úr stærstu vandamálunum sem við blasa kjósa stjórnmálamenn að halda áfram sandkassaleikjum og vera á móti lausnum bara vegna þess að þær komu ekki frá mönnum í „réttu“ liði. Menn geta komist upp með þannig leiki í góðæri og þá verður skaðinn ekki mikill. En á erfiðleikatímum verða slíkir sandkassaleikir hættulegir fyrir land og þjóð því þeir tefja afgreiðslu mikilvægra mála og koma þeim í enn verri farveg en fyrr.


Bloggfærslur 18. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband