Sér gróf gröf

Það var hyggilegt af Baldri Guðlaugssyni að láta af störfum. Siðferðisbrestur hans var svo augljós að í var ótrúlegt að hann skyldi ekki axla skinn sín og hverfa á braut þegar málið komst í hámæli fyrir ári.

Í septemberbyrjun sat Baldur fund með Alister Darling þar sem rædd voru vandræði Landsbankans. Viðskipti Baldurs með hlutabréfin sín gátu því ekki talist eðlileg. Spyrja má hvers vegna hann nýtti ekki upplýsingar sínar til þess að bjarga því sem bjargað varð - einhverju öðru en eigin skinni.

Fjölmiðlar hröktu ekki Baldur Guðlaugsson úr starfi. Hann gerði það sjálfur.


mbl.is Baldur lætur af störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sígild leikrit aðlaga sig sjálf

Í gær fórum við hjónin ásamt vinafólki og sáum Brennuvargana eftir Max Frisch. Leikritið þekkti ég allvel. Við lásum það á frummálinu í menntaskóla og ég minnist þess einnig að hafa heyrt það í flutningi Útvarpsleikhússins. Þar lék Þorsteinn Ö. Stephensen Biedermann.

Leikurinn fjallar um sjálfsblekkingi, græðgi og hugleysi og dregur höfundurinn óspart dár að stórmennsku þeirra sem eru í raun lítilmenni og grimmd þeirra sömu sem telja sig umburðarlynda góðborgara.

Mér til mikillar ánægju fóru saman góður texti, flutningur og áleitinn boðskapur. Þýðingin virðist ný eftir Bjarna Jónsson og virtist talsverður munur á henni og þeirri þýðingu sem notuð var þegar Brennuvargarnir voru settir á svið hjá Leikfélagi Reykjavíkur fyrir nokkrum áratugum.

Leikarar skiluðu hlutverkum sínum allvel. Ólafía Hrönn Jónsdóttir sýndi þær öfgar sem eru í skapgerð góðlyndrar, hjartveikrar konu sem þorir hvorki né getur tekist á við raunveruleikann. Húsbóndann á heimlinu, biedermann sjálfan, lék Eggert Þorleifsson. Eitthvað skorti á dýptina í túlkun hans. Honum tókst með engu móti að skapa þau hrokafullu áhrif og sjálfbyrgingshátt sem einkennt hefur personu Biedermanns í túlkun sumra leikara á þessu hlutverki. Þó örlaði fyrir því í lok sýningarinnar.

Ég heyrði á máli manna, sem þekktu greinilega ekki verkið, að þeir héldu að leikritið hefði verið aðlagað þeim atburðum sem orðið hafa á Íslandi að undanförnu. Svo er ekki. Hins vegar geta flestir fundið eitthvað af sjálfum sér í Biedermann og jafnvel brennuvörgnum. Aðrir geta leikið sér að því að fá ýmsum lykilpersónum í bankahruninu sitt hlutverk og verður þá útkoman jafnmisjöfn þeim sem hafast slíkt að.

Ekki þarf að laga Brennuvarga Biedermanns að samtímanum. Sígild leikrit höfða jafnan til þeirra sem njóta þeirra hverju sinni. Þess vegna teljast verk eins og gullna hliðið vart til sígildra verka enda hefur það leikverk enst illa og aldrei verið sýnt í fullri lengd. Af Brennuvörgunum þar ekkert að skera.


Bloggfærslur 23. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband