Alþingiskosningum frestað um einn eða tvo mánuði

Flest bendir til að skynsamlegt sé að fresta kosningum til Alþingis fram til 23. maí eða jafnvel 20 júní. Það er útilokað að ríkisstjórninni takist að koma í höfn þeim nauðsynjamálum sem brýnt er að afgreiða áður en þing verður rofið.

Sjálfstæðisflokkurinn verður að axla vissa ábyrgð í þessu máli. Þess vegna á hann að leggjast á árarnar með stjórninni og sjá til þess að þingið verði sér ekki til enn meiri minnkunar en orðið er. Auðvitað er það hálfgert ólán að þurfa að reiða sig á kvikulan Framsóknarflokk. Það sjá menn æ betur eftir því sem tímar líða fram.


Ótrúleg stjórnsýsla

Í dag barst mér bréf á blindraletri og svartletri frá Þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga vegna stöðu sérfræðings sem auglýst var á Starfatorgi 16. nóv - 1. des. Er mér sagt að ekki geti orðið að ráðningu "að þessu sinni". Engin skýring gefin. Væri ekki nær að gefa upp ástæðu í stað þess að gera mönnum lífið leitt með eilífum bréfaskriftum? Þar að auki skrifar Þór Þórarinsson, forstjóri, undir bréfið degi eftir að nýr forstjóri var skipaður.


Enn af UAX 220 MIC hljóðkorti

Í fyrrakvöld tók ég úr ónýta rafhlöðu í tölvunni og brá þá svo við að hljóðkortið vann prýðilega. En Adam var ekki lengi í Paradís. Ég las inn pistil og þegar ég hugðist leiðrétta textann og lagfæra var allt gaddfreðið.

Í dag keyrði ég svokallaðan UAX manager sem ég halaði niður af Digigram heimasíðunni. Þar er hægt að stilla ýmislegt svo sem tíðni og bitafjölda auk þess sem hægt er að láta hugbúnað tölvunnar stjórna þessu. Ég brá á það ráð að stilla bitafjöldann á 16 og tíðnina á 44,1, en það er útvarpsstaðallinn. Þá bar svo við að allt gekk eins og í sögu.

Þetta er sett hér inn ef vera skyldi að það kæmi einhverjum að notum í framtíðinni. Öllum þeim sem lögðu mér lið í þessu máli eru færðar þakkir.


Snara - aðgengilegt vefbókasafn

Þessa viku hefur Forlagið opnað vefinn snara.is notendum að kostnaðarlausu, en þar eru ýmis uppflettirit s.s. orðabækur, Nöfn Íslendinga, matreiðslubækur og orðstöðulyklar. Mér sýnist sem verð heimilisáskriftar samsvari því að tæplega eitt uppflettirit yrði keypt á hverju ári.

Sameiginlegt þessum ritum virðist að fremur auðvelt er að fletta upp í þeim. Ókosturinn er e.t.v. sá að tölvunotandi blaðar ekki í þeim eins og í prentuðu uppsláttarriti. En kostirnir eru þó augljósir þeim sem vinna mest á tölvur.

Hér er um merkilegt og þarft framtak að ræða. Fyrir tæpum tveimur áratugum ræddi ég við útgefendur alfræðiorðabóka um nauðsyn þess að koma þeim á tölvutækt snið. Þá var tæknin vart fyrir hendi og þegar hún varð loksins aðgengileg töldu útgefendur vart markað fyrir slíka útgáfu. Þó tókst okkur hjá Blindrabókasafni Íslands að fá barnaorðabók og Hugtök og heiti í bókmenntum á tölvutæku sniði. Var það m.a. að þakka ágætu samstarfi við Mál og menningu og fyrirgreiðslu ritstjórans, dr Jakobs Benediktssonar sem var mikill áhugamaður um skráningu gagna í tölvur.

Ég hvet lesendur þessarar síðu til þess að kynna sér kosti vefbókasafns Snörunnar og njóta þess sem er þar á borð borið. Flestir aðgengisstaðlar eru virtir svo að notendur skjálesara geta einnig nýtt sér vefbókasafnið.


Hver er tilgangur hagsmunasamtaka, undirlægjuháttur eða sókn til framfara?

Á heimasíðu Blindrafélagsins er birt eftirfarandi ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar 26. fyrra mánaðar:

„Félagsmálaráðherra hefur ráðið Huld Magnúsdóttur í stöðu forstjóra Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, en stofnunin hóf starfsemi þann 1 janúar 2009.

Blindrafélagið leggur mikið upp úr því að eiga sem best samstarf við alla þá aðila sem koma að þeim hagsmunamálum sem félagið sinnir og býður því hinn nýja forstjóra velkominn til starfa.

Að mati forystu Blindrafélagsins voru í hópi umsækjenda mjög hæfir einstaklingar sem Blindrafélagið þekkir vel til og jafnframt eru vel kunnugir málefnum blindra og sjónskertra. Enginn þeirra varð fyrir valinu í stöðu forstjóra miðstöðvarinnar.

Að því gefnu að félags- og tryggingarmálaráðuneytið hafi staðið faglega að ráðningunni, má ljóst vera að Blindrafélagið getur haft miklar væntingar til starfa og þekkingar hins nýráðna forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.“

Að undanförhnu virðist sem ýmis samtök fatlaðra hafi fjarlægst þau markmið sín að berjast fyrir aukinni þátttöku félagsmanna sinna í störfum á almennum markaði. Fram til skamms tíma þjónuðu ályktanir þeim tilgangi að leggja áherslu á baráttumál samtakanna. Svo virðist sem allar vígtennur hafi verið dregnar úr Blindrafélaginu.

Það er sennilega ekki of sterkt að orði komist þegar því er haldið fram að hér sé um undirlægjuhátt gagnvart stjórnvöldum að ræða. Athygli vekur, þegar nöfn umsækjenda um embætti forstjóra hinnar nýju þekkingarmiðstöðvar eru skoðuð að enginn þeirra sem hafði menntað sig sérstaklega í málefnum fatlaðra eða hafði sérþekkingu á málefnum blindra, sjónskertra og daufblindra, varð fyrir valinu. Það geta varla talist fagleg sjónarmið.

Blindrafélagið hefur áður brugðist í slíkum málum. Fyrir tveimur árum var auglýst hlutastarf starfsmanns sem skyldi sjá um alþjóðasamskipti félagsins. Fjórir sóttu um starfið og þar voru þrír blindir eða sjónskertir og höfðu víðtæka reynslu af störfum í málaflokknum. Fjórði einstaklingurinn, sem var reynslulaus, var ráðinn.

Blindrafélagið telur að félagsmenn sínir séu greinilega svo illa á vegi staddir að þeim er ekki treyst til forystustarfa á vegum þess. Enginn blindur einstaklingur hefur verið framkvæmdastjóri þess í rúman áraatug.

Hið sama er að segja um Öryrkjabandalag Íslands. Eftir að framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins hafði verið hrakinn úr starfi árið 2006 hefur verið séð til þess að framkvæmdastjóri bandalagsins sé ófatlaður.

Það veikir samtök fatlaðra þegar þau treysta ekki félagsmönum sínum til ábyrgðarstarfa. Eða getur verið að menntun fatlaðs fólks á Íslandi sé svo komið að þessir einstaklingar séu taldir einhvers konar undirmálsfólk af samtökum sínum og ráðherrum sem skipa í opinberar stöður?

Á Íslandi hefur enginn blindur einstaklingur verið ráðinn til forystustarfa í opinberri stofnun baráttulaust og svo verður var á meðan Blindrafélagið sýnir slíkan undirlægjuhátt sem þessi ályktun ber vitni u. Með þessu hætti vinnur félagið ekki á fordómum heldur ýtir undir þá.

Það er því samfélagsleg skylda mín að leita allra leiða til þess að réttur fatlaðra til atvinnu nái fram að ganga. Samtök fatlaðra gera það greinilega ekki.


Bloggfærslur 2. mars 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband