Farið hamförum

Íhaldið fer nú hamförum.

Björn Bjarnason lætur skammirnar dynja á Jóhönnu og ýjar jafnvel að því að þvermóðska hennar hafi gert hana að forsætisráðherra. Björn gleymir því að meginkrafa almennings í haust var sú að þeir, sem stýrðu fjármálum þjóðarinnar og sváfu á vaktinni, yrðu látnir axla pokann sinn. Hvorki hann né aðrir í samstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar höfðu döngun í sér til þess eða gátu hreyft sig, m.a. vegna þess að íhaldið vildi verja sig og sína. Upphlaup þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Alþingi á meðan á afgreiðslu seðlabankafrumvarpisns stóð, var aumlegt. Margir þeirra sögðu í einkasamtölum að vissulega þyrfti þar bfeytinga við. En leiksýningin var fyrir öllu.

Ýmislegt fleira mætti finna að þessum pistli Björns, sem er meintur frændi minn að sumra mati. En þetta er ekki hið eina.

Svo er það kvótakerfið. Jafnvel Vinnslustöðvarforstjóranum trúi ég ekki þegar hann reiknar fyrirtæki í þrot ef fyrningarleið Vinstri grænna verður farin. Það heldur því enginn fram að þau verði svipt úthlutuðum kvóta. Framsalið verður einungis tekið af þeim og kvótanum í raun skilað aftur þjóðinni. Framsal og leiga kvótans hefur verið stundað hér á landi með gersamlega óábyrgum hætti og sjálfsagt að linni.

Almenningur, jafnvel kvótakóngar, ættu að gjalda varhug við ofsa núverandi, tilvonandi og fyrrum stjórnmálamanna Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningar. Leyfum þreyttum að hvíla í friði og Sjálfstæðisflokkurinn þarf svo sannarlega á því að halda. Þjóðin þarf einnig á því að halda að flokkurinn hvíli í friði til þess að hægt verði að endurreisa gildi jafnaðarmennsku og almennrar velsældar í stað auðlegðar sumra.


Atvinnuleysi á Seltjarnarnesi

Í dag barst íbúum Seltjarnarness bréf frá bæjarstjóra sem hann undirritar fyrir hönd bæjarstjórnar. Þar er fólki boðið að skrá sig á vef bæjarins, hafi það misst vinnuna og sækja m.a. um þjónustukort sem veitir ókeypis aðgang að líkamsrækt, sundlaug og bókasafninu. Jafnframt er fólki boðið að taka þátt í könnun um hagi sína.

Það er rétt og skylt að bæjarstjórn hugi að íbúum bæjarins og ástæðum þeirra og ber að þakka það. Í könnuninni er hins vegar eingöngu gert ráð fyrir að menn hafi misst vinnuna á þessu ári og þess vegna yrðu upplýsingar um vandræðafugla eins og undirritaðan villandi, en um áramótin hóf ég 4. ár atvinnuleysisins. Þó verður að segja hverja sögu eins og hún er. Ég hef haft verkefni við pistlagerð fyrir Ríkisútvarpið sem meta má til 10%. Þá var ég ráðinn blaðamaður hjá Morgunblaðinutvö síðustu sumur. Fyrir hvort tveggja er ég afar þakklátur. Sem stendur sé ég ekki nein verkefni framundan í sumar.

Ég sá ástæðu til að rita bæjarstjóra, Jónmundi Guðmarssyni, bréf og þakka þennan áhuga bæjarstjórnarinnar. Ég lagði til að fleiri árum yrði bætt við könnunina. Vel getur verið að á Seltjarnarnesi leynist einhverjir sem hafa misst vinnuna fyrir nokkrum árum og ekki komist út á vinnumarkaðinn af einhverjum ástæðum. Vanda þessa fólks þarf að huga að engu síður en þeirra sem misstu vinnuna á liðnum mánuðum.


Bloggfærslur 20. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband