Um þetta leyti ber óvenju mikið á endurteknu efni í ríkisútvarpinu. Í útvarpsperlum á fimmtudagskvöldum er gamalt efni á boðstólnum, sumt hvert hreinasta menningardýrmæti. Þá eru á laugardagsmorgnum fluttir þættir Jökuls Jakobssonar frá árinu 1971, "Gatan mín". Þessir þættir vöktu verðskuldaða athygli á sínum tíma og gildi þeirra hefur lítið minnkað síðan.
Á sunnudagsmorgnum er síðan Jónas Jónasson með þátt sinn "Sumarraddir". Þar moðar hann úr viðtölum sem hann hefur átt á sinni löngu ævi sem útvarpsmaður, en hann hefur unnið við Ríkisútvarpið í tæpa 6 áratugi. Það fer ekki hjá því að maður með jafnlangan starfsaldur eigi í fórum sínum marga perluna og svo reynist þegar hlýtt er á sumarraddir Jónasar. Þessir þættir báðir eru svo endurteknir á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum.
Safn Ríkisútvarpsins er einhver merkasta heimild um íslenskt þjóðlíf frá því að ríkisútvarpið tók til starfa í desember 1930. Það er því vel að stofnunin skuli miðla efni þess til hlustenda. Hins vegar ber minna á frjórri sköpun í dagskrárgerð en á árum áður.
Þó ber að nefna eina undantekningu sem vel hefur tekist, Leynifélagið sem er á Rás 1 flest kvöld vikunnar kl. 8 og ætlað er börnum. Það kann að torvelda hlustun barna að stundum er þátturinn látinn fara á flakk og hentar það illa því að flest börn vilja geta gengið að sínum föstu liðum á tilteknum stað og stund. En þátturinn er jafnskemmtilegur fyrir það og stjórnendurnir afar hugmyndaríkir.
Stjórnmál og samfélag | 13.5.2009 | 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í greininni er m.a. tíundað hvað gistinótt á hóteli kosti á þeim slóðum en verðið fyrir eins manns herbergi er um 62-100.000 kr á nótt. Ástæða er til að gleðjast yfir því að fólk, sem flestir héldu að hefði misst allt sitt, eigi enn fyrir skemmtiferðum af þessu tagi. Ekki veitir fólki af hugsvölun.
Stjórnmál og samfélag | 13.5.2009 | 08:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 13. maí 2009
Tónlistarspilari
Tenglar
Fonix.blog.is
Helena Björnsdóttir þjálfuð til þess að nýta sér blindrahund
Bloggvinir
-
alla
-
axelthor
-
arnibirgisson
-
ormurormur
-
astafeb
-
bjarnihardar
-
gattin
-
dora61
-
saxi
-
jaherna
-
jovinsson
-
fjarki
-
gislisigurdur
-
gudni-is
-
gelin
-
gummigisla
-
heidistrand
-
helgigunnars
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hoskibui
-
isleifur
-
jakobk
-
fun
-
jonhalldor
-
jon-o-vilhjalmsson
-
nonniblogg
-
juliusvalsson
-
kje
-
kristbjorggisla
-
methusalem
-
mortenl
-
moguleikhusid
-
skari60
-
rafng
-
ragnar73
-
fullvalda
-
duddi9
-
siggisig
-
saemi7
-
vefritid
-
thorirj
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kínversk málefni og menning
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar