Skrípaleikur stjórnarandstæðinga á Alþingi

Í morgun hitti ég þrautreyndan fjölmiðlaskarf og tókum við tal saman. Dáðist hann að forsætisráðherra fyrir að hafa flutt munnlega skýrslu um efnahagsmál án þess að segja nokkurn skapaðan hlut og koma með einhverjar lausnir.

Ég brást við til varnar ráðherranum og sagðist halda að enginn þeirra, sem bað um skýrsluna vissi sitt rjúkandi ráð. Stjórnarandstaðan væri jafnráðvillt ef ekki ráðvilltari en ríkisstjórnin.

Gamli skarfurinn, sem hefur verið fremur hallur undir Sjálfstæðisflokkinn, færðist þá allur í aukana og sagði: “Bjarni Benediktsson hefði áreiðanlega hækkað bæði bensínið og brennivínið ef hann hefði verið í stjórn”. Héldum við síðan áfram að fjargviðrast út í stjórnarandstöðuna og Alþingi. Vorum við sammála um að málflutningur hennar væri ótrúverðugur enda kynni hún fá ráð til að rétta af halla ríkissjóðs.

Umræðan á Alþingi í gær sínir á hvaða villigötum stjórnarandstaðan er. Í stað þess að sitja hjá eða samþykkja hreinlega boðaðar ráðstafanir, eins og skynsamlegast hefði verið, ryðjast menn fram með gagnrýni og skömmum í stað þess að nefna nokkrar lausnir. Sýndarmennskan er slík að stjórnarandstæðingar þora ekki að kannast við að grípa þurfi til erfiðra ráðstafana og óvinsælla sem bitna á öllum landslýð.

Þegar ég fór af vettvangi voru fleiri komnir í spilið og heyrðist mér ekki betur en þeir kölluðu þingstörf gærdagsins hreinan skrípaleik.


Bloggfærslur 29. maí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband