Ofurlaun þrátt fyrir stórfellt tap

Tryggvi Þór Hergbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðaustur-kjördæmi hafði áhyggjur af því á dögunum að kjör væntanlegs bankastjóra ríkisbanka yrðu lakari en þeirra tveggja banka sem verða væntanlega einkavæddir innan skamms. Þessi sami þingmaður hefur verið málsvari frjálsrar eftirspurnar. Ekki er vitað til að mikil eftirspurn sé eftir íslenskum bankastjórum og því hætt við að erfitt verði að rökstyðja himinháar launagreiðslur þeirra í landi þar sem fjármagnsskortur ríkir.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar (Decode Genetics) hefur hins vegar haft áhyggjur af eyðslu hins opinbera og andæft gegn byggingu tónlistarhússins. Hann hefur þá reynslu að stýra fyrirtæki sem hefur tapað miklu fé og orðið að segja upp fjölda fólks. Þannig hefur sparast nokkurt fé.

viðra

Ekki er að sjá að sparnaðar hafi verið leitað í stjórnunarkostnaði hjá Íslenskri erfðagreiningu (Decode Genetics). Aðalfundur fyrirtækisins er framundan og í gögnum vegna ársuppgjörs 2008 kemur ýmislegt fróðlegt fram.

Frá árinu 2004 hefur fyrirtækið tapað um 400 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur tæplega 52 milljörðum íslenskra króna og í fyrra varð tapið 85 milljónir bandaríkjadala eða um 1100 milljónir íslenskra króna.

Ýmsir lykilstjórnendur, þar á meðal forstjórinn, höfðu í laun og fríðindi, t.d. með kaupréttarsamningum um 1,2 millj. dala eða um 140 millj. kr. á ári, tæpar 12 millj. á mánuði.

Þótt tapið sé umtalsvert er ekki að sjá að kreppa sé á meðal stjórnenda þar á bæ.

Lesendum er bent á að tafla yfir launakjör stjórnenda er á bls. 15 í skjali sem tengt er þessari færslu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 25. júlí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband